Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður þýska liðsins Bayern München, segir að hans menn eigi erfitt en skemmtilegt verkefni fyrir höndum að mæta Manchester United.
Hann segir á heimasíðu Bayern að flestir reikni með United áfram í undanúrslitin.
„Við þurfum að eiga okkar allra besta leik til að komast áfram. Manchester United er sigurstranglegra liðið enda eitt það allra besta. En það gerir verkefnið skemmtilegra, reyna að slá út þá sigurstranglegri," sagði Rummenigge.