Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar kláruðust í gær og þar með er ljóst hvaða átta lið eru komin í átta liða úrslitin. Alls eiga sex þjóðir fulltrúa í átta liða úrslitunum sem er það mesta síðan 1998-99.
England og Frakkland eiga bæði tvö lið í hópi þeirra átta bestu en þar eru einnig lið frá Spáni, Ítalíu, Þýskalandi og Rússlandi. Fyrir ellefu árum áttu þessar þjóðir fulltrúa í átta liða úrslitunum: Ítalía (2 lið), Þýskaland (2 lið), England, Spánn, Úkraína, Grikkland.
England hefur átt fjögur lið í átta liða úrslitunum undanfarin tvö tímabil en núna datt Liverpool út í riðlakeppninni og Chelsea út úr 16 liða úrslitunum.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir það hve margar þjóðir hafa átt lið í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Þjóðir með fulltrúa í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar2009-2010 Sex þjóðirEngland 2 (Manchester United, Arsenal), Frakkland 2 (Bordeaux, Lyon), Spánn 1 (Barcelona), Ítalía 1 (Internazionale), Þýskaland 1 (Bayern Munchen), Rússland 1 (CSKA Moskva)
2008-2009 Fjórar þjóðirEngland 4 (Manchester United, Liverpool, Arsenal, Chelsea), Spánn 2 (Villarreal, Barcelona), Þýskaland 1 (Bayern Munchen), Portúgal 1 (Porto).
2007-2008 Fimm þjóðirEngland 4 (Manchester United, Liverpool, Arsenal, Chelsea), Spánn 1 (Barcelona), Ítalía 1 (Roma), Þýskaland 1 (Schalke 04), Tyrkland 1 (Fenerbahce)
2006-2007 Fimm þjóðirEngland 3 (Manchester United, Liverpool, Chelsea), Ítalía 2 (AC Milan, Roma), Spánn 1 (Valencia), Þýskaland 1 (Bayern Munchen), Holland 1 (PSV Eindhoven)
2005-2006 Fimm þjóðirÍtalía 3 (Juventus, Internazionale, AC Milan), Spánn 2 (Villarreal, Barcelona), England 1 (Arsenal), Frakkland 1 (Lyon), Portúgal 1 (Benfica).
2004-2005 Fimm þjóðirÍtalía 3 (Juventus, Internazionale, AC Milan), England 2 (Liverpool, Chelsea), Holland 1 (PSV Eindhoven), Þýskaland 1 (Bayern Munchen), Frakkland 1 (Lyon),
2003-2004 Fimm þjóðirEngland 2 (Arsenal, Chelsea), Spánn 2 (Deportivo La Coruna, Real Madrid), Frakkland 2 (Lyon, Monaco), Ítalía 1 (AC Milan), Portúgal 1 (Porto).
2002-2003 Fjórar þjóðirSpánn 3 (Barcelona, Real Madrid, Valencia), Ítalía 3 (Juventus, Internazionale, AC Milan), England 1 (Manchester United), Holland 1 (Ajax)
2001-2002 Fjórar þjóðirSpánn 3 (Barcelona, Deportivo La Coruna, Real Madrid), Þýskaland 2 (Bayern Munchen, Bayer Leverkusen), England 2 (Manchester United, Liverpool), Grikkland 1 (Panathinaikos)
2000-2001 Fjórar þjóðirSpánn 3 (Valencia, Deportivo La Coruna, Real Madrid), England 3 (Leeds, Liverpool, Arsenal), Tyrkland 1 (Galatasaray), Þýskaland 1 (Bayern Munchen),
1999-2000 Fimm þjóðirSpánn 3 (Barcelona, Valencia, Real Madrid), England 2 (Manchester United, Chelsea), Ítalía 1 (Lazio), Þýskaland 1 (Bayern Munchen), Portúgal 1 (Porto).
1998-1999 Sex þjóðirÍtalía 2 (Internazionale, Juventus), Þýskaland 2 (Bayern Munchen, Kaiserslautern), England 1 (Manchester United), Spánn 1 (Real Madrid), Úkraína 1 (Dynamo Kiev), Grikkland 1 (Olympiacos).