Alves: Þurfum 200% einbeitingu

Vísir Meistaradeildin 17. mars 2010 11:30
Daniel Alves segir að leikurinn í kvöld verði alls ekki auðveldur.
Daniel Alves segir að leikurinn í kvöld verði alls ekki auðveldur.
Elvar Geir Magnússon skrifar:

Daniel Alves, bakvörður Evrópumeistara Barcelona, segir að sitt lið þurfi fulla einbeitingu til að komast áfram í Meistaradeildinni í kvöld.

Börsungar taka á móti Stuttgart í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum. Barcelona er í betri stöðu fyrir leikinn eftir 1-1 jafntefli í Þýskalandi.

„Ef þú ert ekki 200% þá detturðu út. Við þurfum að hlaða batteríin og vera viðbúnir. Við viljum komast áfram og erum í betri stöðu fyrir framan okkar áhorfendur. Við megum ekki klúðra því," sagði Alves.

„Við vitum hve mikilvæg og erfið þessi keppni er. Smá mistök og þú ert sendur heim. Þetta verður erfiður leikur og við verðum að gefa allt í þetta."

Í hinum leik kvöldsins tekur Bordeaux á móti Olympiakos. Franska liðið er í góðum málum þar eftir 1-0 sigur í Grikklandi.




Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasaðist við tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvægum leikjum eða heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfærður um að Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Alves: Þurfum 200% einbeitingu