Sameinast í baráttu gegn einelti

Vísir Innlent 17. mars 2010 12:15
Sameinast í baráttu gegn einelti
Dagur án eineltis verður haldinn í fyrsta skipti á vegum Reykjavíkurborgar í dag og hefst með táknrænni athöfn á Tjarnarbakkanum klukkan 14. Þar verða nemendur úr nokkrum skólum borgarinnar samankomnir og mun barnakór taka lagið. Viðstaddir fá miða í hönd og verða beðnir um að skrifa jákvæð skilaboð út í samfélagið til að hengja á tré en að því loknu verður efnt til málþings í Ráðhúsinu.

"Ég flutti þá tillögu í borgarstjórn á haustmánuðum að það yrði einn dagur á ári helgaður einelti og þá jafnt einelti sem á sér stað í skólum, í íþrótta- og tómstundastarfi og á vinnustöðum fullorðinna. Tillagan var samþykkt og er ætlunin að gunnskólar, leikskólar og vinnustaðir borgarinnar taki höndum saman og hugi að því hvernig hægt er að gera vinnuumhverfið jákvæðara og þannig úr garði gert að einelti geti ekki þrifist," segir Marta Guðjónsdóttir, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur.

Málþingið verður helgað lausnum á einelti og munu fjölmargir fyrirlesarar taka til máls. Má þar nefna Gísla Árna Eggertsson, skrifstofustjóra íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar, sem fjallar um uppsprettu eineltis, Guðmund Kjerúlf, verkefnastjóra fræðsludeildar Vinnueftirlitsins, sem fjallar um félagslegt og andlegt vinnuumhverfi, Fannýju Gunnarsdóttur, námsráðgjafa Álftamýrarskóla, sem kynnir sýnishorn úr kvikmynd Viðars Freys Guðmundssonar, Einelti: ofbeldi meðal barna, og Ingibjörgu Baldursdóttur frá Liðsmönnum Jerico sem eru landssamtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þolenda.

Marta segir það mannréttindi að líða vel á vinnustað hvort sem það er í vinnu eða skóla. Hún segir ýmsum aðgerðum hafa verið hrundið í framkvæmd á vegum Reykjavíkurborgar til að sporna gegn einelti og að margir leik- og grunnskólar hafi náð árangri auk þess sem umræðan um einelti hafi stóraukið þekkingu á afleiðingum þess.

"Borgarstjórn Reykjavíkur telur hins vegar mikilvægt að fylgja þessu eftir með afgerandi hætti og því var ákveðið að efna til samræmds átaks. Ráðgert er að dagurinn verði haldinn árlega héðan í frá en að vinnan fari fram á öllum vinnustöðum borgarinnar þess á milli. Við erum að vonast til að geta vakið enn frekar athygli á þessum vágesti og fengið almenning í lið með okkur til að vinna gegn honum," segir Marta.

Marta er formaður starfshóps sem kom með tillögur að eineltisdeginum en allir pólitískir flokkar í borgarstjórn eiga fulltrúa í honum. "Hugmyndin er að hann verði alltaf að störfum, fylgist með og bregðist við ef á þarf að halda," segir hún.

vera@frettabladid.is







Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:44

Lýst eftir Birnu Dögg

Lögreglan lýsir eftir Birnu Dögg Gunnarsdóttur til heimilis að Heiðarhvammi 7, Reykjanesbæ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Sameinast í baráttu gegn einelti