Barn fékk tífaldan sýklalyfjaskammt

Fréttablaðið Innlent 16. mars 2010 06:00
Barn fékk tífaldan sýklalyfjaskammt

Sjö ára stúlka innbyrti um helgina tífaldan skammt af sýklalyfinu Furadantin, sem móðir hennar hafði leyst út í Árbæjar-apóteki. Málið hefur verið kært til Lyfjastofnunar.

Samkvæmt lyfseðlinum átti stúlkan að taka inn þrjá fimm milligramma skammta á dag, en mæðg-urnar gengu út úr lyfsölunni með glas sem innihélt 50 milligramma skammta. Móðir telpunnar gaf henni svo þessa skammta.
Stúlkan, Rosalía Hanna Canales Cederborg, fékk blöðrubólgu í liðinni viku og fór til læknis á fimmtudag. Lyfið var leyst út þann daginn og strax um kvöldið kvartaði stúlkan undan magaverk.

„Á föstudaginn kastaði hún upp og var slöpp allt kvöldið. Ég hélt að hún væri komin með ælupest," segir móðir hennar, Maria Cederborg, í kæru sem hún hefur sent til Lyfjastofnunar.

Maria gaf dóttur sinni lyfið aftur á laugardaginn, þrátt fyrir að stelpan færðist undan því.

Þegar Rosalía kastaði upp annan daginn í röð runnu tvær grímur á móðurina og hún áttaði sig á mistökunum.

„Við vorum heppin að þetta var ekki skaðlegra lyf. Hugsaðu þér ef þetta hefði verið eitthvað annað, eitthvað sem skemmir," segir Maria. Hún tekur fram að hún sé í góðu sambandi við apótekið og að þar séu allir miður sín vegna þessa. Hún hefur vakið athygli Lyfjastofnunar á málinu til að fyrirbyggja að svona geti komið fyrir aftur.

Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að þetta mál fari nú í ferli hjá stofnuninni. Kannað verði hvað fór úrskeiðis og síðan óskað eftir viðbrögðum frá lyfsala um hvernig komið verði í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.

„Sem betur er þetta sjaldgæft, að minnsta kosti okkur vitanlega," segir Rannveig.

Lyfjastofnun hefur ekki réttindi sjúklinga á hendi og Rannveig vill því ekki segja til um hvaða rétt neytendur hafa í tilfelli sem þessu, til dæmis til skaðabóta.

Spurð um viðurlög vegna mistaka lyfsala segir Rannveig:

„Það er metið í hverju tilfelli fyrir sig, en ef það eru mörg mistök í sömu lyfjabúð þá getur viðkomandi aðili fengið áminningu sem gæti leitt til leyfissviptingar."

Kristján Steingrímsson lyfjafræðingur í apótekinu staðfestir mistökin.

„Því miður var þetta ranglega afgreitt," segir hann. Nú sé vandlega farið yfir verkferla innanhúss.

klemens@frettabladid.is


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Barn fékk tífaldan sýklalyfjaskammt