Opnið augun

Fréttablaðið Fastir pennar 15. mars 2010 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

Á Íslandi þrífst skipulögð glæpastarfsemi. Það er staðreynd, sem ekki þarf lengur að deila um. Í fréttaskýringu í helgarblaði Fréttablaðsins var fjallað um þann heim, sem hér er orðinn til, þar sem konum er haldið í kynlífsþrælkun, fólk er ánauðugt í vinnu, menn eru fluttir til Íslands gagngert til að brjóta af sér, fórnarlömbum og hugsanlegum vitnum er hótað og grófu ofbeldi er beitt.

Lögreglan hefur staðið sig vel í baráttunni við skipulögð glæpasamtök, sem teygja anga sína hingað. Í mansalsmálinu, þar sem dómur var felldur í síðustu viku, beittu lögregluyfirvöld nýjum aðferðum. Nauðsynlegt þótti að tryggja vitnum og fórnarlömbum sérstaka vernd. Unnið var hættumat á vegum greiningardeildar Ríkislögreglustjóra, sem löngu hefur sannað gildi sitt. Gott samstarf var við lögregluyfirvöld í Litháen og víðar, sem stuðlaði að því að upplýsa málið og að mansalsmennirnir fengju sinn dóm.

Lögreglan þarf hins vegar ríkari heimildir til að taka á skipulagðri glæpastarfsemi. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra nefndi í Fréttablaðinu tvennt. Annars vegar eru svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir, sem heimila að hafin sé rannsókn og jafnvel fylgzt með tilteknum einstaklingum án þess að þeir séu grunaðir um tiltekið afbrot. Lögregluyfirvöld í langflestum nágrannalöndum okkar hafa þessar heimildir, en þær eru þar háðar ströngu eftirliti bæði dómsvaldsins og löggjafarvaldsins. Hins vegar vill ráðherra láta kanna hvort hægt sé að beita ákvæði stjórnarskrárinnar um að leysa megi upp félög með ólögmætan tilgang gegn samtökum á borð við Vítisengla.

Ragna segir að lögregluyfirvöld séu vel meðvituð um að berjast þurfi gegn skipulögðum glæpasamtökum. „En það þarf að fræða bæði stjórnmálamenn og almenning betur um það sem er að gerast því að fæstir verða sem betur fer varir við þessa hluti í sínu daglega lífi. Dómsmálaráðuneytið og lögreglan geta ekki verið ein í þessari baráttu," segir dómsmálaráðherrann.

Full ástæða er til að samráðherrar Rögnu Árnadóttur í ríkisstjórninni hlusti á þessi orð og taki þau til sín. Það eru nefnilega helzt núverandi stjórnarflokkar sem á undanförnum árum hafa beitt sér gegn því að lögreglan fái í hendur þau tæki, sem hún þarf til að geta tekið á andstyggilegum glæpamönnum á borð við þá, sem héldu litháísku stúlkunni í kynlífsþrældómi.

Þegar rætt var um auknar heimildir lögreglu og stofnun greiningardeildar Ríkislögreglustjóra á Alþingi fyrir nokkrum árum voru Össur Skarphéðinsson og Ögmundur Jónasson þannig í hópi þeirra þingmanna, sem harðast mæltu gegn slíkum breytingum og töluðu um „leyniþjónustu" og „njósnastarfsemi".

Vonandi hafa menn síðan séð hverju stofnun greiningardeildarinnar hefur skilað, til dæmis í mansalsmálinu. Og vonandi nær dómsmálaráðherrann nú árangri í uppfræðslu félaga sinna í stjórnarliðinu, þannig að þeir opni augun gagnvart þeim vanda, sem við er að etja og vinni með dómsmálaráðuneytinu og lögreglunni að því að bregðast rétt við.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Opnið augun