Bandaríkjamenn þrýsta mjög á Ísraela að hætta við áform um að byggja 1600 nýjar íbúðir í austurhluta Jerúsalem.
Benjamín Netanyahu forsætisráðherra hefur beðist afsökunar á því að tilkynnt skyldi um þetta meðan Joe Biden varaforseti Bandaríkjanna var í heimsókn í Miðausturlöndum.Hann virðist þó ekkert á þeim buxunum að hætta við. Hann sagði á ísraelska þinginu í dag að Gyðingar hefðu byggt hús í Austur-Jerúsalem í fjörutíu ár.
Það hefði á engan hátt skaðað Palestínumenn og ekki verið á þeitta kostnað.
Palestínumenn vilja fá þennan borgarhluta sem höfuðborg í sjálfstæðu ríki sínu þegar þar að kemur.
Netanyahu hefur reynt að gera lítið úr þessum ágreiningi við Bandaríkjamenn.
Hver bandaríski stjórnmálamaðurinn eftir annan hefur hinsvegar fordæmt byggingaáformin.
Og sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael segir að sambúð landanna hafi ekki verið svona slæm í marga áratugi.