Prófdómari víki af lögmannanámskeiði

Fréttablaðið Innlent 15. mars 2010 03:13
Prófdómari víki af lögmannanámskeiði

Þórður S. Gunnarsson, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, gagnrýnir harðlega tilhögun námskeiða og prófa sem lögfræðingar taka til að fá réttindi sem héraðsdómslögmenn.

„Forseta lagadeildar Háskóla Íslands er það skiljanlega mikið kappsmál að nemendum deildarinnar gangi vel á hdl.-prófinu svokallaða. Það er því með öllu óásættanlegt og brýtur í bága við vandaða stjórnsýsluhætti og hæfisreglur að eiginmaður deildarforsetans, Markús Sigurbjörnsson hæstaréttardómari, með fullri virðingu fyrir honum, skuli vera prófdómari á hdl. námskeiðinu," segir Þórður.

Þá segir Þórður að hafa verði í huga í þessu sambandi að prófraunin sem Markús sé prófdómari í sé munnleg. „Það er reyndar sjálfsögð og eðileg krafa að öll prófin á námskeiðinu verði eftirleiðis skrifleg og tekin á prófnúmerum en ekki undir nafni," segir hann.

Að sögn Þórðar hefur verið staðfest að einn af kennurunum á námskeiðinu, sem jafnframt sé kennari við lagadeild HÍ, hafi á undanförnum árum haft fyrir reglu að leggja fyrir nemendur á hdl. námskeiðinu að stórum hluta sömu prófspurningar og hann hefur áður lagt fyrir nemendur í prófum við lagadeild HÍ.
„Af þessum sökum hafa nemendur lagadeildar HÍ haft mun meiri tíma og tækifæri til undirbúnings en nemendur frá öðrum lagadeildum, sem aðeins fá tvo daga til undirbúnings. Þetta er óásættanleg mismunun og reyndar sérstakt athugunarefni hvers vegna þessi framkvæmd hefur verið látin viðgangast," segir Þórður.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu á mánudaginn var, virðast tölur frá prófnefnd Lögmannafélags Íslands sýna að lögfræðingar úr Háskóla Íslands standi sig betur á áðurnefndu námskeiði en lögfræðingar úr öðrum háskólum hérlendis. Þórður segir þessar tölur vera mjög villandi og að þeim beri að taka með miklum fyrirvara. Hann bendir á að af 45 lögfræðingum útskrifuðum frá Háskólanum í Reykjavík, sem skráðu sig í hdl. prófið á árunum 2007 til 2009, hafi 38 staðist prófið eða 84,4 prósent.
Þórður segist ekki vera að varpa rýrð á hdl.-námskeiðið í heild. „Ég hygg hins vegar að ég mæli fyrir munn margra þegar ég segi að löngu sé tímabært að endurskoða inntak námskeiðsins og framkvæmd með hliðsjón af því hvaða tilgangi það eigi að þjóna."
gar@frettabladid.is



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Prófdómari víki af lögmannanámskeiði