Innbyrđis deilur sliga stjórn VR

Fréttablađiđ Innlent 15. mars 2010 04:00
Hófst međ deilum um Gunnar Styrinn sem stóđ um Gunnar Pál Pálsson í formannsstóli VR í fyrra hefur heldur betur dregiđ dilk á eftir sér. Nú er stjórn félagsins nánast óstarfhćf vegna klofnings og deilna.Fréttablađiđ/stefán
Hófst međ deilum um Gunnar Styrinn sem stóđ um Gunnar Pál Pálsson í formannsstóli VR í fyrra hefur heldur betur dregiđ dilk á eftir sér. Nú er stjórn félagsins nánast óstarfhćf vegna klofnings og deilna.Fréttablađiđ/stefán

Mikil ólga er í stjórn VR, stærsta stéttarfélags landsins, nú þegar póstkosning um stjórn og trúnaðarráð stendur fyrir dyrum. Tiltæki fjögurra stjórnarmanna úr samtökunum Nýju Íslandi, að skila á síðustu stundu inn mótframboði við áður samþykktan lista uppstillingarnefndar, hefur vakið hörð viðbrögð félaga þeirra í stjórninni.

Póstkosning um sjö sæti í fimmtán manna stjórn VR og 82 manna trúnaðarráð félagsins hefst í dag og mun standa í tvær vikur. Annars vegar verða þrír stjórnarmenn kosnir í einstaklingskosningu, og hins vegar fjórir stjórnarmenn og trúnaðarráðið í heild í listakosningu, en sá listi sem hlýtur meirihluta atkvæða nær allur kjöri.



Kristinn Örn Jóhannesson
Kristinn Örn Jóhannesson
Stillti upp lista og bauđ fram annan
Fyrir áramót kaus trúnaðarráð VR uppstillingarnefnd til að raða áhugasömum niður á framboðslista og var sá listi samþykktur einróma á nýársfundi félagsins, án athugasemda, mótframboða eða breytingartillagna.
Rúmum tveimur mánuðum síðar, um miðjan febrúar, var hins vegar stofnað til nýs framboðs. Aðstandendur þess eru fjórir stjórnarmenn úr VR sem hafa sterk tengsl við samtökin Nýtt Ísland. Einn þeirra, Bjarki Steingrímsson, átti sæti í uppstillingarnefndinni sem lagði til fyrri framboðslistann og annar, Ragnar Þór Ingólfsson, tilnefndi fulltrúa í nefndina.
Þetta hefur farið illa í aðra stjórnarmenn, sem telja óeðlilegt að fjórmenningarnir – Bjarki, Ragnar, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Bergur Þór Steingrímsson – bjóði fram gegn lista sem sumir þeirra stóðu að. Þá hafa stjórnarmenn rætt það sín á milli að framboðið sé hugsanlega ólögmætt, vegna þess að það hafi þann eina tilgang að ná völdum í félaginu til þess að stuðla að óróa á vinnumarkaði, sundra samtöðunni og grafa undan hagsmunum félagsmanna.
Þá hefur stefna samtakanna Nýs Íslands einnig farið nokkuð fyrir brjóstið á öðrum stjórnarmönnum VR. Þeir lýsa stefnunni sem lýðskrumi og taka undir gagnrýni sem heyrst hefur á meinta alræðis-hyggju sem sjá megi í stefnuskrá samtakanna.
Nokkrir þeirra sem sæti áttu á fyrri trúnaðarráðslistanum höfðu hug á að færa sig um set yfir á nýja framboðslistann, en kjörnefnd tók fyrir það. Ekki væri hægt að breyta þegar samþykktum framboðslista.

askjdf kljadksaj
askjdf kljadksaj
Eldarnir logađ frá hruni
Mjög hefur verið tekist á í VR síðan eftir bankahrun. Rekja má átökin til óánægju með fyrrverandi formann félagsins, Gunnar Pál Pálsson, sem setið hafði í stjórn Kaupþings fyrir hrun og sem stjórnarmaður komið að ýmsum umdeildum ákvörðunum.
Gunnar fékk í kjölfarið tvö mótframboð til formanns. Annað kom frá Lúðvík Lúðvíkssyni, sem nú er einn talsmanna Nýs Íslands. Hann naut stuðnings þess fólks sem nú stendur að mótframboðinu til stjórnar. Það náði kjöri í stjórnina í fyrra undir merkjum L-listans, en Lúðvík, líkt og Gunnar Páll, laut í lægra haldi fyrir Kristni Erni Jóhannessyni, sitjandi formanni.
Síðan hefur ýmislegt gengið á. Ragnar Þór Ingólfsson, einn þeirra sem stendur að mótframboðinu umdeilda, birti í fyrrasumar á bloggsíðu sinni tölvupóstssamskipti svokallaðrar ‚skuggastjórnar‘, sem samanstóð af fyrrverandi stjórnarmönnum og samherjum Gunnars Páls. Sá hópur gat illa sætt sig við að nýliðarnir í L-listanum, sem nú kenna sig flestir við Nýtt Ísland, hefðu haft sigur í trúnaðarráðskjörinu, og mátti af póstsamskiptunum ráða að fólkið hygðist freista þess að ná undirtökum í félaginu á ný.
Í haust birtust svo upplýsingar í fjölmiðlum um notkun stjórnar-manna í VR á greiðslukortum félagsins og hefur L-listafólkið úr Nýja Íslandi verið sakað um að leka upplýsingunum til að koma höggi á aðra stjórnarmenn.

Lúđvík Lúđvíksson
Lúđvík Lúđvíksson
Vilja ráđast gegn verđtryggingunni
Afnám verðtryggingar er eitt helsta stefnumál þess arms í VR sem spyrtur hefur verið við Nýtt Ísland. Sá hópur hefur í kjölfar yfirlýsingarinnar um mótframboðið verið ötull í gagnrýni sinni á linkind félagsins og stjórnarmanna þess í garð stjórnvalda og Alþýðusambandsins. Gagnrýnin hefur ekki síst beinst að tveimur fyrrverandi samherjum þeirra; Ágústi Guðbjartssyni og Ástu Rut Jónasdóttur, varaformanni VR. Bæði náðu þau kjöri með L-listanum en hafa síðan gengið af trúnni.
Gagnrýnin snýr meðal annars að því að þau, líkt og formaðurinn Kristinn Örn, hafi ekki viljað skrifa undir áskorun til stjórnvalda um afnám verðtryggingar, sem og því að Ágúst hafi látið af harðri andstöðu sinni við ASÍ eftir að honum var boðið sæti í miðstjórn sambandsins.

Deilurnar lama stjórnina
Langvinnur kryturinn hefur dregið mjög tennurnar úr starfi félagsins að sögn þeirra sem til þekkja. Þannig hafi stór hluti stjórnarfunda undanfarið ár mestmegnis gengið út á innbyrðis deilur. Eins og áður segir fæst botn í það eftir tvær vikur hverjir hafa betur í baráttunni.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigrađi í Evróvisjón

Ţađ var lagiđ Mundu eftir mér sem sigrađi í Evróvisjón í kvöld. Ţađ var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuđu hćttulegt rauđvín

Nokkrir ađdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmćltu ákvörđun vínbúđarinnar um ađ leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambiđ á Ţórshöfn međ mikla höfuđáverka

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á gjörgćsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvađa lög sprengjumađurinn braut

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist viđ hríđarveđri seint í kvöld

Ţađ hvessir af suđri seint í köld og hlýnar heldur. Á hćstu fjallvegum um landiđ vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánćgju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir ađ Rannveig Ásgeirsdóttir myndađi meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu fékk tilkynningu um ađ útigangsmenn hefđi veriđ ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ćtlađi ađ slökkva á brunabođanum en rćsti innbrotsbođann í stađinn

Hann var óheppinn iđnađarmađurinn sem var ađ störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmađur Íslands bjargađi dóttur sinni

Rauđi kross Íslands hefur valiđ Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráđi...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttrćđisaldri og misţyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin ţyngd sjúklinga hćkkar kostnađ vegna lyfja

Aukin ţyngd sjúklinga hefur hćkkađ kostnađ Landspítalans vegna lyfja síđustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmađur stunginn og svo fćrđur í fangageymslu

Karlmađur var stunginn í nótt í Hafnarfirđi og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörđun um gćsluvarđhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörđun um ţađ síđar í dag hvort ađ krafist verđi gćsluvarđahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verđur haldinn um allt land í dag. Markmiđ dagsins er ađ kynna neyđarnúmeriđ ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Fćrđ og ađstćđur: Hálka víđa á Suđurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiđi og Ţrengslum en snjóţekja á Lyngdalsheiđi, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillađir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafđi afskipti af fjórum unglingum viđ Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gćrk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíđa Alţingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmađur segir í minnisblađi til borgarráđs ađ borgin verđi ađ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast ađ verđmćtar minjar endi í brćđslu

Safnaráđ tók skeiđar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugđist fara međ góssiđ ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja ađ nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfrćđingur á sviđi fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viđtali viđ Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Innbyrđis deilur sliga stjórn VR