Myndum ekki tapa dómsmáli um Icesave

Fréttablađiđ Innlent 13. mars 2010 04:00
Myndum ekki tapa dómsmáli um Icesave
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir breska og hollenska ráðamenn sýna Íslendingum hroka og yfirlæti. Samninganefndir ríkjanna gangi einnig fram af mikilli hörku. Hann gagnrýnir íslensku ríkisstjórnina fyrir að ganga í öðrum takti en þjóðin. Mat hans er að það sé að losna um stífnina hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum gagnvart Íslandi.

Bjarni Benediktsson telur að ný staða sé í Icesave-málinu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrir viku. Þjóðin hafi í henni gefið ríkisstjórninni skýrt merki um að ekki að sé sama hver efnisleg niðurstaða nýrra Icesave-samninga verður. „Það er kominn tími til að ríkisstjórnin reyni að vera í betri takti við þjóðina um lausn þessa máls. Það getur vel verið að Steingrímur og Jóhanna vilji láta sem svo að hér hafi engin þjóðaratkvæðagreiðsla farið fram en hún fór fram og meirihluti kosningabærra manna mætti á kjörstað. Fólk sagði nei við þeirri niðurstöðu sem þau höfðu leitt fram og það hefur þýðingu, hvað sem þau segja. Það er ekki hægt að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist, skilaboðin eru skýr; fólki er ekki sama hvernig málið er leitt til lykta. Flestir eru sammála um að það þurfi að fást niðurstaða en það skiptir máli hvernig sú niðurstaða er fengin og hvað hún felur í sér."

Bjarni átelur málflutning forystumanna ríkisstjórnarinnar og telur hann spilla fyrir. „Það er stöðugt talað um í hve slæmum málum við erum ef samningar nást ekki. Ég held að það sé afskaplega óskynsamleg framganga þegar verið er að reyna að leysa málið á sem farsælastan hátt fyrir þjóðina. Tönnlast er á því að við séum að verða fyrir gríðarlegu tjóni, án þess reyndar að hægt sé að reikna það. Auðvitað fær fólk hnút í magann þegar það heyrir forystumenn ríkisstjórnarinnar tala um stöðuna á þjóðarbúinu eins og okkur sé öllum að blæða út."

Hann segir enn fremur að svo virðist sem ríkisstjórnin leggi allt kapp á að klára málið, fremur en að ná hagstæðri niðurstöðu. „Máli mínu til stuðnings bendi ég á að ríkisstjórnin er í tvígang búin að ljúka málinu og í bæði skiptin var það mikilvægara að fá niðurstöðu heldur en sjálf efnis-atriði málsins."

Hagsmunamat Bjarni Benediktsson segir ađ á sínum tíma hafi hagsmunirnir veriđ metnir ţannig ađ betra vćri ađ semja um Icesave heldur en ađ vísa málinu í dóm. Áfram beri ađ reyna ađ semja en reynist ţađ ómögulegt hljóti Íslendingar ađ hverfa aftur til lagalegrar stöđu málsins. fréttablađiđ/anton
Hagsmunamat Bjarni Benediktsson segir ađ á sínum tíma hafi hagsmunirnir veriđ metnir ţannig ađ betra vćri ađ semja um Icesave heldur en ađ vísa málinu í dóm. Áfram beri ađ reyna ađ semja en reynist ţađ ómögulegt hljóti Íslendingar ađ hverfa aftur til lagalegrar stöđu málsins. fréttablađiđ/anton
Sýnist ađ losna sé um stífnina
Ráðherrarnir hafa vissulega lagt áherslu á nauðsyn þess að ljúka málinu. Rökstuðningurinn fyrir þeirri nauðsyn hefur verið efnahagslegur; áætlunin með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sé í frosti sem og lánin frá Norðurlöndunum. Þá hangi gjaldeyrishöft og stýrivaxtastigið á spýtunni. Bjarni segist sammála því að tafir á endurskoðun efnahagsáætlunarinnar og veitingu Norðurlandalánanna megi rekja til Icesave. Engu að síður sé fráleitt að tengja málin saman. „Hins vegar sýnist mér á öllu að nú sé að losna um allt hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum alveg óháð Icesave. Það les ég úr yfirlýsingum framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og utanríkisráðherra Noregs.
Ég á mjög erfitt með að skilja hvers vegna önnur ríki sem ekki eiga aðild að þessari deilu láta það gerast að lánsbeiðni okkar hjá AGS sé tafin. Þar horfi ég fyrst og fremst til Norðurlandanna því lánsloforð frá þeim er forsenda þess að sjóðurinn afgreiði málið. Norðurlöndin eru í raun og veru lykillinn að lausn og um leið og þau segja að þau ætli að standa við sín loforð óháð Icesave-deilunni getum við fengið fyrirgreiðslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum."

Samningsmarkmiđin ţau sömu
Ekki er ástæða, að mati Bjarna, til að endurskoða samningsmarkmið Íslands í viðræðunum við Breta og Hollendinga. Lagt hafi verið upp með skynsamlega nálgun þegar viðræðulotan hófst. Hann vill ekki útlista samningsmarkmið Íslands enda viðræðurnar á viðkvæmu stigi. Þó segir hann að lagt hafi verið af stað með mjög háleit markmið um niðurstöðu en þau hafi verið aðlöguð þróun viðræðnanna. Fyrir liggi að eigur þrotabús Landsbankans muni duga fyrir að minnsta kosti 90 prósentum af lágmarkstryggingu EES-samningsins sem hljóðar upp á 20.887 evrur á reikning og ekki sé útilokað að eigur bankans dugi fyrir allri skuldinni. „Nú hefur komið í ljós hve hátt hlutfall af kröfum Breta og Hollendinga hefur legið í vaxtaliðnum. Okkar upphaflega upplegg var að við myndum veita þeim tryggingu fyrir því sem út af stæði en engin lán yrðu tekin og engir vextir greiddir. Þessu höfnuðu þeir og komu með sitt útspil um vaxtaleysi framan af tímanum og svo einhverja vexti."
Þjóðirnar greinir á um hve háan kostnað Bretar og Hollendingar bera af lántökum og útgreiðslu lágmarkstryggingarinnar til reikningseigenda. Ber mikið í milli. Bjarni telur ekki koma til greina að semja um grundvallaratriði málsins en vísa kostnaðarágreiningnum í gerðardóm.

„Ég held að annaðhvort semji menn eða þetta fari allt fyrir dómstóla. Spurningin sem þá fer til dómstóla verður sú hvort ríkinu beri skylda til að veita ábyrgð á innstæðutryggingasjóðnum. Ég hef enga trú á að við getum tapað því dómsmáli."

Áfram reynt en annars í dóm
Bjarni segir hagsmunamat hafa ráðið því á sínum tíma að íslensk stjórnvöld ákváðu að fara í viðræður um lausn málsins fremur en að vísa því til dómstóla. „Við mátum hagsmuni okkar þannig að þeim væri betur borgið með að leiða fram sanngjarna niðurstöðu í málinu frekar en að standa stíf á okkar ítrasta rétti. Það hefur hins vegar komið í ljós að okkur er ekki mætt af neinni sanngirni en við erum ennþá að reyna að knýja fram niðurstöðu sem hægt er að fella sig við. Reynist það ómögulegt hljótum við að hverfa aftur til okkar lagalegu stöðu." Spurður hvort hann telji að sú geti orðið raunin á næstu dögum eða vikum segist Bjarni ekki ætla að spá því að samningaviðræðurnar renni út í sandinn. Hann gerir þó athugasemdir við framkomu stjórnvalda í Bretlandi og Hollandi í garð Íslendinga. „Ýmis ummæli ráðherra í þessum tveimur löndum hafa ekki farið fram hjá okkur. Þeir tala til okkar af ótrúlegum hroka og sýna okkur mikið yfirlæti. Þeir gera meira að segja lítið úr formanni íslensku samninganefndarinnar á opinberum vettvangi. Þetta er engin framkoma gagnvart okkur." Mikillar hörku gæti einnig innan samninganefnda ríkjanna.

Bjarni segist bera fullt traust til íslensku samninganefndarinnar. Formaður hennar, Lee Buchheit, hafi haldið vel á málinu og nefndin í heild staðið sig vel. Kveðst hann ekki búast við öðru, og ekki heyra annað, en að samstaða sé í stjórnarandstöðunni um að halda samstarfi stjórnmálaflokkanna um lausn Icesave-málsins áfram.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigrađi í Evróvisjón

Ţađ var lagiđ Mundu eftir mér sem sigrađi í Evróvisjón í kvöld. Ţađ var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuđu hćttulegt rauđvín

Nokkrir ađdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmćltu ákvörđun vínbúđarinnar um ađ leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambiđ á Ţórshöfn međ mikla höfuđáverka

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á gjörgćsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvađa lög sprengjumađurinn braut

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist viđ hríđarveđri seint í kvöld

Ţađ hvessir af suđri seint í köld og hlýnar heldur. Á hćstu fjallvegum um landiđ vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánćgju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir ađ Rannveig Ásgeirsdóttir myndađi meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu fékk tilkynningu um ađ útigangsmenn hefđi veriđ ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ćtlađi ađ slökkva á brunabođanum en rćsti innbrotsbođann í stađinn

Hann var óheppinn iđnađarmađurinn sem var ađ störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmađur Íslands bjargađi dóttur sinni

Rauđi kross Íslands hefur valiđ Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráđi...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttrćđisaldri og misţyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin ţyngd sjúklinga hćkkar kostnađ vegna lyfja

Aukin ţyngd sjúklinga hefur hćkkađ kostnađ Landspítalans vegna lyfja síđustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmađur stunginn og svo fćrđur í fangageymslu

Karlmađur var stunginn í nótt í Hafnarfirđi og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörđun um gćsluvarđhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörđun um ţađ síđar í dag hvort ađ krafist verđi gćsluvarđahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verđur haldinn um allt land í dag. Markmiđ dagsins er ađ kynna neyđarnúmeriđ ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Fćrđ og ađstćđur: Hálka víđa á Suđurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiđi og Ţrengslum en snjóţekja á Lyngdalsheiđi, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillađir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafđi afskipti af fjórum unglingum viđ Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gćrk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíđa Alţingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmađur segir í minnisblađi til borgarráđs ađ borgin verđi ađ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast ađ verđmćtar minjar endi í brćđslu

Safnaráđ tók skeiđar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugđist fara međ góssiđ ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja ađ nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfrćđingur á sviđi fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viđtali viđ Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Myndum ekki tapa dómsmáli um Icesave