Veigar Páll: Ćtla ađ sýna ţađ ađ Nancy hafđi rangt fyrir sér

Vísir Norrćni boltinn 12. mars 2010 12:00
Veigar Páll Gunnarsson í landsleik.
Veigar Páll Gunnarsson í landsleik. Mynd/Anton
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Veigar Páll Gunnarsson er kominn aftur til Stabæk eftir martröðina með Nancy í franska fótboltanum og um helgina er fyrsta umferð norsku úrvalsdeildarinnar. Veigar Páll var af því tilefni í viðtali hjá NTB, stærstu fréttastofunni í Noregi.

„Ég ætla að sýna það og sanna að Nancy hafði rangt fyrir sér," sagði Veigar Páll í viðtalinu. Hann fékk fá tækifæri hjá Nancy og skoraði ekki eitt einasta mark. Veigar Páll varð hinsvegar meistari með Stabæk þegar hann lék síðast með liðinu og fór þá á kostum með þeim Daniel Nannskog og Alanzinho.

„Við áttum örugglega þátt í meira en 50 mörkum saman þetta tímabil. Ég ætla ekki að setja þá pressu á okkur fyrir mót en stuðningsmenn fá vonandi eitthvað af mörkum frá okkur," sagði Veigar Páll en hann sjálfur hefur gert 47 mörk í 85 leikjum í norsku úrvalsdeildinni.

„Mótherjarnir þekkja okkur betur núna og þetta hefur ekki gengið alveg nógu vel á undirbúningstímabilinu. Við komust vonandi aftur í gang og þetta verður vonandi skemmtilegt tímabil," sagði Veigar sem skoraði tvö mörk í síðasta æfingaleiknum fyrir mótið.

„Ég hafði ekkert sjálfstraust þegar ég var í Frakklandi en ég ætla að sýna það að ég get þetta ennþá og vonandi hefur fólk ekki misst trúna á mig. Ég hef lagt mikið á mig til að koma sterkur til baka. Ég elska Stabæk og það hvernig við spilum," segir Veigar Páll en hann segist vera ánægður ef að Stabæk nær fjórða sætinu á þessu tímabili.

Fleiri fréttir - Norrćni boltinn

Norrćni boltinn 31. jan. 2012 23:42

Theódór Elmar kominn til Randers

Theódór Elmar Bjarnason er genginn til liđs viđ Randers í Danmörku og samdi viđ liđiđ til ...  

Meira
Norrćni boltinn 26. jan. 2012 15:30

Ragnar óttast ekki samkeppnina

Ragnar Sigurđsson, leikmađur danska meistaraliđsins FC Kaupmannahöfn, segist ekki óttast a...  

Meira
Norrćni boltinn 12. jan. 2012 19:51

Birkir orđađur viđ Brann

Norska sjónvarpsstöđin TV2 greindi frá ţví í dag ađ landsliđsmađurinn Birkir Bjarnason sé ...  

Meira
Norrćni boltinn 12. jan. 2012 15:45

Liđsfélagi Rúriks hjá OB fćr 428 milljóna tilbođ frá Kína

Peter Utaka, liđsfélagi Rúriks Gíslasonar hjá danska félaginu Odense Boldklub er vćntanleg...  

Meira
Norrćni boltinn 09. jan. 2012 13:00

Sölvi Geir og Ragnar fá nýjan ţjálfara

Íslensku landsliđsmennirnir Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurđsson fá nýjan ţjálfara efti...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Norrćni boltinn / Veigar Páll: Ćtla ađ sýna ţađ ađ Nancy hafđi rangt fyrir sér