Plástur læknar húðkrabbamein Óli Tynes skrifar 12. mars 2010 10:07 James Ferguson, prófessor.
Plástur sem læknar húðkrabbamein verður kynntur á læknaráðstefnu í Mónakó í dag. Plásturinn hefur enn ekki verið þróaður fyrir sortuæxli en árangurinn í meðferð á öðrum tegundum húðkrabbameins er sagður vera 90 prósent. Þetta er auðvitað enginn venjulegur heftiplástur heldur hátækniplástur þar sem fer saman notkun á kremi og litlu ljósi. Kreminu er nuddað inn í húðina. Það síast aðeins inn í krabbameinsfrumurnar en ekki heilbrigða vefi. Plásturinn er svo lagður yfir. Eftir þrjár klukkustundir kviknar ljósið sjálfkrafa. Það breytir kreminu í eiturefni sem drepur krabbameinsfrumurnar án þess að skaða húðina að öðru leyti. Þetta er bæði fyrirhafnarminna og sársaukaminna en skurðaðgerð og skilur ekki eftir sig nein ör. Sky fréttastofan ræddi við Muriel Lowe sem fór í tvær plástursmeðferðir með viku millibili. Hún sagði að árangurinn hefði verið stórkostlegur. Hún sagði að húð sín væri þannig að hún hefði fengið ör eftir skurðaðgerð. Læknar hefðu sagt sér að útlitslega væri þetta heppilegra og einfaldara og þeir hefðu haft rétt fyrir sér. Hönnuður plástursins er prófessor James Ferguson við Ninewells sjúkrahúsið í Dundee í Skotlandi. Hann segir að enn sé verið að þróa plásturinn og finna nýjar leiðir til að nota ljósið, til dæmis að láta það púlsera. Það sé enn hægt að bæta árangurinn. Ferguson segir að plásturinn sé svo einfaldur í notkun að hægt sé að nota hann á venjulegum læknastofum. Það minnki álag á sjúkrahúsum.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Sjá meira