Innlent

Leita sér aðstoðar vegna kynferðis- og heimilisofbeldis

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Einkaviðtölum á Akureyri og Ísafirði hefur fjölgað. Myndin er sviðsett.
Einkaviðtölum á Akureyri og Ísafirði hefur fjölgað. Myndin er sviðsett.
Einkaviðtölum hjá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Akureyri, fjölgaði um 14% í fyrra. Árið á undan fjölgaði þeim um 94%.

Guðrún Þórsdóttir, talskona Aflsins, segir að tvær nýjar starfskonur séu að hefja störf og önnur þeirra muni svo starfa á Sauðárkróki. Í orðsendingu frá Guðrúnu segir hún að skjólstæðingar þurfi að keyra langar vegalengdir til að sækja viðtöl og hópastarf. Forvarnarstarfið sé alltaf að aukast enda sé þörfin sem aldrei fyrr.

Þá hefur viðtölum á vegum Sólstafa Vestfjarða, sem eru sjálfshjálparsamtök fyrir þolendur kynferðisofbeldis, einnig fjölgað. Um 65% aukning var á komu einstaklinga árið 2009 og voru einstaklingsviðtölin um 70 það árið.

Sólstafir Vestfjarða og Aflið á Akureyri vinna markvisst að sporna við ofbeldi í samfélaginu og að bæta hagi og aðbúnað þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða eru í áhættuhóp hvað þetta varðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×