Beckham vissi ekki ađ hann hefđi sett upp mótmćla-trefilinn

Vísir Meistaradeildin 11. mars 2010 12:30
David Beckham međ trefilinn.
David Beckham međ trefilinn. Mynd/AP
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Það vakti athygli í leikslok á leik Manchester United og AC Milan í Meistaradeildinni í gær þegar David Beckham setti upp gula og græna trefilinn sem stuðningsmenn United hafa gert að táknrænum mótmælum gegn Malcolm Glazer, aðaleiganda liðsins.

„Ég er stuðningsmaður Manchester United. Ég sá bara trefilinn og setti hann um hálsinn. Það eina sem ég vissi var að þetta eru gömlu litirnir hjá Manchester United," sagði David Beckham en þetta eru litir Newton Heath sem var upprunanlegt nafn félagsins sem seinna varð að Manchester United.

„Ég hef ekkert með þessi mótmæli að gera og þau koma mér ekki við. Ég er stuðningsmaður Manchester United og stend á bak við félagið. Ég hef alltaf gert það og mun alltaf gera það. Ég skipti mér ekkert af því hvernig félagið er rekið en ég mun alltaf styðja lið félagsins," sagði David Beckham.

Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Beckham vissi ekki ađ hann hefđi sett upp mótmćla-trefilinn