Ögmundur aftur ráðherra

Fréttablaðið Innlent 10. mars 2010 06:45
Búist er við því að Ögmundur Jónasson taki aftur sæti í ríkisstjórn. Mynd/ Vilhelm.
Búist er við því að Ögmundur Jónasson taki aftur sæti í ríkisstjórn. Mynd/ Vilhelm.
Ríkisstjórnin stendur veikari eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag og þarf að eflast eigi hún að geta tekist á við mörg brýn og aðkallandi verkefni. Augljósasta og jafnframt besta leiðin til að styrkja stjórnina er að Ögmundur Jónasson verði ráðherra á ný. Líklegast verður það samhliða öðrum breytingum.

Þetta er álit nokkurra viðmælenda Fréttablaðsins í þingliðum Samfylkingarinnar og VG. Herma heimildir að áform um endurkomu Ögmundar séu í smíðum og að hann muni að líkindum setjast í stjórnina fljótlega eftir páska. Þingmenn Samfylkingarinnar sem rætt var við sögðu að ríkisstjórnin væri í raun þriggja flokka stjórn. Það væri ófært og liður í að sameina þingflokk VG væri að gera Ögmund að ráðherra.
Í „órólegu deildinni" í VG er sagt að það skjóti skökku við, fyrir utan allt annað, að vinstri maðurinn Ögmundur Jónasson standi utan vinstri stjórnarinnar.

Samkvæmt heimildum blaðsins hefur Ögmundur sjálfur ekki þrýst á um endurkomu í ríkisstjórn; þeirri kröfu sé haldið á lofti af nánu samstarfsfólki hans í stjórnmálum. Ekki er frágengið hvaða aðrar breytingar verða á ríkisstjórninni. Óvíst er hvort hann sest aftur í sinn gamla stól í heilbrigðisráðuneytinu, en hann mun hafa hug á því. Alveg eins líklegt er að frekari breytingar verði og jafnvel stólaskipti. Þá er sú leið nefnd að utanþingsráðherrarnir víki og Ögmundur komi inn ásamt einhverjum frá Samfylkingunni. Þá er allt eins líklegt að verkefnaskrá stjórnarinnar verði tekin til endurskoðunar.

Ögmundur Jónasson varð heilbrigðisráðherra í minnihlutastjórninni sem tók við völdum 1. febrúar í fyrra en sagði af sér embætti 30. september.
Var það vegna óánægju með þróun Icesave-málsins og afarkosta, sem hann sagði að sér væru settir. Leit hann svo á að hann hefði verið rekinn. „Mér finnst ég ekki vera heppilegur kandídat að tala fyrir hönd ríkisstjórnar sem nýverið hefur vísað mér á dyr," sagði Ögmundur við Fréttablaðið eftir að hann hafði fáum dögum eftir afsögn hafnað því að tala í þingumræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Ögmundur aftur ráðherra