Solskjaer: Antonio Valencia getur orđiđ eins góđur og Beckham

Vísir Meistaradeildin 09. mars 2010 15:30
Ole Gunnar Solskjaer og David Beckham.
Ole Gunnar Solskjaer og David Beckham. Mynd/GettyImages
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Ole Gunnar Solskjaer, fyrrum markaskorari og margfaldur meistari með Manchester United, hefur mikla trú á Ekvador-manninum Antonio Valencia sem kom til United frá Wigan fyrir 16 milljónir punda í sumar.

„Antonio er draumaliðsfélagi sóknarmannsins og hann er líka draumaleikmaður stjórans," sagði Ole Gunnar Solskjaer við Manchester Evening News.

„Hann er vinnusamur og skilar sínu varnarlega. Hann spilar vel fyrir liðinu og er ekki bara mikilvægur þegar hann sækir upp kantinn heldur einnig þegar hann er að pressa boltann," segir Solskjaer.

„Hann er sérstakur af því að hann hefur bæði mikinn hraða og býr yfir góðri sendingartækni. Ég get vel skilið það þegar menn eru að bera hann saman við David Beckham því þeir vinna báðir vel fyrir liðið og þeirra fyrsta markmið er að senda hættulega bolta inn í teiginn," segir Ole Gunnar og bætir við:

„Antonio Valencia getur orðið eins góður og Beckham," sagði Norðmaðurinn sem skoraði ófá mörkin eftir sendingar frá David Beckham.




Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Solskjaer: Antonio Valencia getur orđiđ eins góđur og Beckham