Svo virðist sem árás á kristna menn í þremur þorpum í Jos-héraði í Nígeríu hafi verið hefndaraðgerðir vegna árásar á múslima í sama héraði fyrir nokkrum vikum.
Árásarmenn vopnaðir sveðjum myrtu yfir tvö hundruð manns, þar af fjölmörg börn. Eitt fjögurra daga gamalt barn var í hópi hinna látnu. Árásirnar á múslima fyrir tæpum tveimur mánuðum kostuðu meira en 300 manns lífið.
Héraðið Jos er miðsvæðis í Nígeríu þar sem fjöldi ólíkra þjóðernishópa býr. Átök milli kristinna og múslima þar hafa oft verið harðvítug. - gb