Fabregas er mjög tćpur fyrir Porto-leikinn

Vísir Meistaradeildin 08. mars 2010 09:30
Cesc Fabregas fagnar marki sínu á móti Burnley um helgina.
Cesc Fabregas fagnar marki sínu á móti Burnley um helgina. Mynd/AP
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er allt annað en viss um að hann geti notað fyrirliðann sinn, Cesc Fabregas, í seinni leiknum á móti Porto í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.

Cesc Fabregas þurfti að yfirgefa völlinn á 39. mínútu á móti Burnley í ensku úrvalsdeildinni um helgina en hafði áður skorað sitt 17. mark á tímabilinu og komið Arsenal í 1-0. Fabregas meiddist enn á ný aftan í læri.

Arsene Wenger vill ekki taka neina óþarfa áhættu og því er allt eins víst að Cesc Fabregas verði upp í stúku þegar Arsenal reynir að vinna upp 2-1 forskot Porto frá því í fyrri leiknum.

„Tek ég áhættuna með að nota Fábregas? Það fer eftir því hve mikil áhættan er," sagði Arsene Wenger. „Ég er tilbúin að taka einhverja áhættu en ef að hún er meira en 50 prósent á að hann meiðist aftur þá mun hann ekki spila," sagði Wenger.

Það efast hinsvegar enginn um mikilvægi leikmannsins sem hefur sem dæmi skorað 14 mörk og gefið 15 stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.



Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Fabregas er mjög tćpur fyrir Porto-leikinn