Steingrímur endurskoði vinnubrögð gagnvart þingflokki VG

Vísir Innlent 08. mars 2010 11:51
Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir. Mynd/GVA
Heimir Már Pétursson skrifar:

Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave áfellisdóm yfir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í málinu. Formaður Vinstri grænna þurfi einnig að endurskoða vinnubrögð sín gagnvart þingflokknum.

Lilja Mósesdóttir þingmaður Vinstri grænna skrifar á Fésbók síðu sína í dag hvað það þýði eiginlega að þétta raðirnar til að stjórnin haldi velli og vísar þar til orða Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í gær, sem sagði stjórnarliða þurfa að þétta raðirnar. Og Lilja spyr á Fésbókinni hvort fólk sé að tala um skoðanaofbeldi gagnvart stjórnarliðum sem börðust gegn samþykkt Icesave samningsins? Ef svo sé muni þessi ríkisstjórn ekki sitja lengi.

Í samtali við fréttastofu sagði Lilja að sumir dyggir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar hefðu sjálfsagt ekkert á móti því að hún þagnaði. En fyrir henni væru stjórnmál tímabundið verkefni. Hún hefði boðið sig fram með tiltekin mál á oddinum á sínum tíma, að samþykkja ekki Icesave samningana, að gripið yrði til aðgerða fyrir heimilin í landinu og að vera í andstöðu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Þegar hún var spurð hvort efnahagsáætlun sjóðsins væri ekki hluti af efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar, sagði Lilja að gert væri ráð fyrir reglulegum endurskoðunum á áætlun sjóðsins og Íslendingar hlytu að endurskoða sinn þátt áætlunarinnar rétt eins og sjóðurinn endurskoðaði sinn þátt.

Lilja segir að mistekist hafi að ná samstöðu innan stjórnarflokkanna um framgang Icesave málsins strax í byrjun síðasta árs. Þá hafi fimm þingmenn lagst gegn því í þingflokki Vinstri grænna að Steingrímur J. Sigfússon formaður flokksins og fjármálaráðherra færi og undirritaði samninginn. Hann hafi samt gert það. Hún sagði þjóðaratkvæðagreiðsluna um helgina ekki hafa snúist um ríkisstjórnina almennt, en væri engu að síður áfellisdómur yfir vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í málinu.

Þegar hún var spurð hvort Steingrímur þyrfti að endurskoða sína stöðu, sagði Lilja að hann þyrfti alla vega að endurskoða vinnubrögð sín gagnvart þingflokki Vinstri grænna. Þingflokksfundir hefjast klukkan hálf tvö í dag og segist Lilja ætla að láta þessi sjónarmið koma fram á þingflokksfundi Vinstri grænna. Að loknum þingflokksfundum gefur forsætisráðherra Alþingi munnlega skýrslu um stöðu Icesave viðræðnanna.





Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Steingrímur endurskoði vinnubrögð gagnvart þingflokki VG