Laun til listamanna minnka atvinnuleysi

Vísir Aðsendar greinar 04. mars 2010 15:13
Laun til listamanna minnka atvinnuleysi
MYND/Jan Berg
Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar:

Um mánaðarmótin febrúar-mars ár hvert er sem fjandinn verði laus þegar birt er niðurstaða Stjórnar listamannalauna þ.e. hver skuli hljóta starfslaun listamanna það árið. Samsæriskenningar líta dagsins ljós bæði frá hendi listamanna og almennings og fjölmiðlar blanda sér í leikinn. Þessi mánaðarmót eru engin undantekning og má segja að Bylgjan hafi komið hreinni flóðbylgju af stað mánudaginn 1.mars í þættinum Í bítið með spjalli um listamannalaun. Þar skipuðu Heimir og Þráinn sér í hlutverk sækjenda og Sólveig tók að sér verjandahlutverk menningarinnar í landinu og síminn opinn fyrir almenning að leggja orð í belg.

Að sjálfsöðu voru skiptar skoðanir á hlutunum sem verður alltaf á öllum hlutum, sérstaklega þegar ónógar forsendur liggja fyrir ákvarðanatöku. Ýmislegt fékk að fjúka í þessum fyrsta þætti Í bítið. Að launasjóður væri subbulegur speni, launasjóður blóðsugna sem ætti að leggja af, eða snobbatvinnuleysisbætur, sem sýnir einmitt hve lítt upplýst fólk er um efni þessara styrkja. Líkt og Njörður Sigurjónsson lektor við Háskólann á Bifröst benti á í þarfri grein sinni um ,,Listlaun og menningarstefnu" í Fréttablaðinu 4. mars, þá er heitið ,,listamannalaun" misvísandi heiti á þeim verkefnastyrkjum sem verið er að úthluta. Verkefnastyrkir sem styrkhafendur þurfa að gera grein fyrir hvernig voru notaðir, ekki ósvipað og þeir stofn- og verkefnastyrkir sem úthlutaðir eru árlega til fyrirtækja og félaga hjá Fjárlaganefnd. Eins var í þættinum uppi misskilningur á því hve margir væru á þessum ,,spena" og var tölunni 1.200-1.600 hent fram en það er einmitt fjöldi mánaða sem úthlutaðir voru. Viðbrögð við þættinum létu ekki á sér standa bæði hjá almenningi og listamönnum og skrifaði Sara Riel myndlistarkona þeim þáttastjórnendum bréf og tók upp hanskann fyrir sitt fólk. Þetta svar virðist hafa farið fyrir brjóstið á einum þáttastjórnandanum, af svari hans að dæma, en nálgast má bæði bréfin á heimaslóð Söru á Facebook.

Daginn eftir hélt umræðan áfram Í bítið og var Þráinn Bertelsson rithöfundur og þingmaður fenginn til að koma og ræða um listamannalaunin. Hann var kannski ívið háfleygur fyrir hinn almenna hlutstanda en benti réttilega á að listamannalaunin eru ,,einhver besta fjárfestingin sem ríkið leggur út í" og því er ég innilega sammála. Hvers vegna er það góð fjárfesting? Fyrir því eru tvö megin rök.

Í fyrsta lagi hafa verið gerðar kannanir á hinum Norðurlöndunum þar sem sannað þykir að það sé fjárhagslega hagkvæmt að setja pening í menningu og listir, því að fyrir hverja krónu sem sett er í menninguna koma TVÆR til baka. Þetta er í formi aukinna starfa, skatta, virðisaukaskatts og gjaldeyris sem kemur inn í landið. Þar sem þjóðfélagsuppbygging og virðisaukaskattur er viðlíka og hjá nágrönnum okkar tel ég að niðurstaða slíkra kannanna yrði hér mjög svipuð.

Í öðru lagi þá gera listamannalaun það að verkum að listamenn geta sinnt því starfi sem þeir eru bestir í og hafa menntað sig til, í stað þess að vera í aukavinnu við skúringar, afgreiðslustörf, bankastörfum, kennslu o.s.frv. sem aðrir eru mun færari að sinna. Þannig losna hreinlega störf fyrir aðra, þar sem listamenn mega ekki þiggja laun á örðum stað meðan þeir gegna listamannalaunum. Í landi þar sem atvinnulausir eru 17.000 manns tel ég að það væri þjóðhagslega hagkvæmt að hreinlega styrkja alla 3.000 listamenn í landinu (tala félagsmanna í BÍL - Bandalagi íslenskra listamanna) til að sinna sínum hugðarefnum og láta þannig atvinnulausum eftir þau störf sem þeir sinna sér til viðurværis nú. Þannig myndi atvinnulausum fækka niður í 15.000. Raunar myndi atvinnuleysið minnka enn meir ef marka má aðra könnum sem gerð var bæði í Finnlandi og Danmörku. Þar fundu menn út að fyrir hvern starfandi listamann í landinu í fullu starfi eru níu í vinnu beinlínis vegna hans starfa og við að þjónusta hann. Þarna erum við að tala um fjölmiðlafólk (fyrst skal frægan telja), vefforritara , starfsmenn listasafna, gallería, póshúsa, verslana sem selja efniviðinn, flugfélaga, samgöngufyrirtækja, prentsmiðja og svo mætti lengi telja. Mér reiknast til að við gætum einfaldlega útrýmt atvinnuleysi með því að setja alla listamenn landsins á ,,spenann" og skapað að auki 13.000 störf, því það er enginn endir á því hvað frjóum listamönnum dettur í hug að setja á laggirnar ef þeim er gefinn tími og ráðrúm til þess.

Eini viðmælandinn Í bítið sem mér fannst hafa eitthvað til málanna að leggja var kvennmaður sem vildi láta tekjutengja listamannalaunin, hugmynd sem er alls ekki fráleit og hefur reyndar lengi verið við lýði hjá norðmönnum. Þannig tryggir ríkið starfandi listamönnum sem uppfyllt hafa vissann punktafjölda (sem byggist á blöndu af námi, sýningarfjölda og aldri) lágmarkslaun(n.minstelönn) þar sem listamaðurinn fær milligjöfina frá ríkinu hafi honum ekki tekist að selja listaverk sem nemur atvinnuleysisbótum þann mánuðinn.

Fyrst rætt er um Noreg þá má geta þess að út var að koma svartaskýrsla þar í landi, sem lýsir bágri stöðu myndlistarmanna. Ég hef dvalið langdvölum í Noregi og hefur nú fundist sem þar drjúpi smjör af hverju strái og bíð því spennt að komast yfir eintak af þessari skýrslu. Ég vil að SÍM fái óháða aðila til að bera norsku skýrsluna saman við stöðu íslenskra myndlistarmanna og mætti segja mér að staðan væri svona líkt og hjá Oliver Twist fyrir og eftir ættleiðingu. Kannski væri auðveldasta lausnin á deilumálum um listamannalaun að þiggja boð norðmannsins sem vildi gera Ísland ríki í Noregi, ég tel allavega að þá væri okkur myndlistarmönnum borgið.

Hrafnhildur Sigurðardóttir er myndlistarmaður, forstöðumaður og hugmyndasmiður Ness listamiðstöðvar á Skagaströnd og frambjóðandi í formannskosningu SÍM - Sambandi íslenskra myndlistarmanna sem verða laugardaginn 6. mars.



Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Laun til listamanna minnka atvinnuleysi