Landsbankinn selur Bílaleigu Flugleiða/Hertz 2. mars 2010 15:02
Allt hlutafé Bílaleigu Flugleiða ehf. hefur verið selt til félags í jafnri eigu Sigfúsar R. Sigfússonar, Sigfúsar B. Sigfússonar, Hendriks Berndsen og Sigurðar Berndsen. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist söluna. Í tilkynningu segir að fyrrnefndir kaupendur þekkja vel til rekstur bílaleigu en þrír þeirra síðasttöldu áttu og ráku ALP bílaleigu á árunum 2000-2004. Sigfús R. Sigfússon var um árabil eigandi og forstjóri bifreiðaumboðsins Heklu hf. Nýr eigandi tók formlega við rekstri félagsins 1.mars og hyggst reka það áfram með óbreyttu sniði. Hann hefur verið samþykktur af Hertz International og hefur einn leyfi til að nota og markaðssetja vörumerkið Hertz á Íslandi. Söluferlið hófst formlega með birtingu auglýsingar í fjölmiðlum föstudaginn 22. janúar og var opið öllum fjárfestum sem sýnt gátu fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna og fengju samþykki Hertz International. Þrettán hópar fjárfesta sýndu fyrirtækinu áhuga í upphafi, 9 þeirra var boðin áframhaldandi þátttaka og 4 hópum að lokum boðið að gera bindandi tilboð. Kaupverð er trúnaðarmál. Salan fór fram að undangenginni fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins. Bílaleiga Flugleiða ehf. (Hertz á Íslandi) er ein af stærstu bílaleigum landsins. Fyrirtækið rekur 9 starfsstöðvar um allt land og ræður yfir 1000 bifreiðum yfir háannatímann. Í dag starfa 45 manns hjá félaginu en yfir sumarið er starfsmannafjöldi á bilinu 70-80 manns. Hertz International er stærsta bílaleiga heims með starfsemi í 145 löndum og 7.700 starfsstöðvar. Hertz vörumerkið er jafnframt eitt af þekktustu vörumerkjum heims.
Mest lesið Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Viðskipti erlent Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Viðskipti innlent Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Viðskipti innlent Tollar á ál og stál hækka Viðskipti erlent Íslenskir kvenstjórnendur: Bjartsýnar en með áhyggjur af stríði Atvinnulíf Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Viðskipti innlent Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Fleiri fréttir Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Sjá meira