Góða mamma

Fréttablaðið Bakþankar 26. febrúar 2010 06:00
Brynhildur Björnsdóttir.
Brynhildur Björnsdóttir.
Brynhildur Björnsdóttir skrifar:

Ég á tvær fullkomnar dætur og ég held að ég sé bara þokkalegasta mamma. Ég syng fyrir þær og hlæ með þeim, les og teikna, púsla og perla, snýti, skeini og skipti á bleyjum, plástra og mæli, hugga og hæli. Ég vanda mig. Og hef alla tíð gert, frá upphafi meðgangna og til dagsins í dag.
Þess vegna ætlaði ég mér að sjálfsögðu að hafa þær á brjósti. Allar konur geta haft börnin sín á brjósti og það er það langbesta sem hægt er að gera fyrir börn. Sögðu heilbrigðisstarfsmenn og bækur og Netið og allir. Og ég trúði því.

Allar konur, það er að segja, nema ég. Alveg sama hvað ég reyndi (nudd, bakstra, hylki, te, pumpu, rafmagnspumpu, hjálparbrjóst, nefndu það), ég bjó ekki til nóg af mjólk til að næra börnin mín sem sultu fyrstu vikurnar á meðan á þessum tilraunum stóð. Mér mistókst þetta aðalhlutverk hverrar móður. Og var miður mín.

Ég fór til brjóstagjafaráðgjafa sem gaf í skyn að það væri leti og sérhlífni sem kæmi í veg fyrir að börnin mín fengju það sama og önnur börn. Ekki varð það til að lappa upp á móðursjálfsmyndina. Og þó þurrmjólk sé sennilega fullkomnasti matur sem nokkru sinni hefur verið búinn til utan mannslíkama fannst mér samt að ég væri að gefa börnunum mínum eitur þegar ég loks gafst upp og stakk pelanum upp í þær. Ég var versta mamma í heimi.

Þangað til ég vogaði mér að tala um hvernig mér leið við ættingja og vinkonur. Þá kom í ljós fjöldinn allur af mömmum sem höfðu heldur ekki getað brjóstfætt börnin sín sem síðan uxu upp til að verða fyrirmyndarfólk. Eins og dætur mínar sýna alla burði til að verða.

Móðurmjólk er auðvitað frábær en það geta ekki allar konur haft börnin sín eingöngu á brjósti. Þær vilja það hins vegar langflestar. Því er það rangt og ljótt af heilbrigðisstarfsfólki að predika brjóstagjöf eins og guðspjall og láta mæðrum líða eins og þær séu annars flokks ef téð brjóstagjöf gengur ekki sem skyldi. Það gerir mömmur óhamingjusamar og það er alls ekki gott fyrir börn.

Góðar mömmur annast börnin sín, knúsa og næra og gefa þeim góða mjólk að drekka. Þótt þær hafi ekki búið hana til sjálfar.





Fleiri fréttir - Bakþankar

Bakþankar 11. feb. 2012 06:00

Amfetamín, óábyrgt kynlíf og stríð

Motörhead er hættuleg hljómsveit. Í 37 ár hefur boðskapurinn sem Lemmy Kilmister og félaga...  

Meira
Bakþankar 10. feb. 2012 06:00

Kátir kjúklingar

Ég er ekki bara grænmetisæta. Ég borða líka fisk, ávexti, egg og stundum súkkulaði. Ég bor...  

Meira
Bakþankar 09. feb. 2012 06:00

Það sem ekki má

Karl Lagerfeld segir að Adele sé feit. Sem hún er. Netbyggðin fyllist heilagri vandlætingu...  

Meira
Bakþankar 08. feb. 2012 11:01

Leiðindi á leiðindi ofan

Hver veit hvaða köflum í viðræðum við Evrópusambandið er lokið? Og hverjir eftir? Hver get...  

Meira
Bakþankar 07. feb. 2012 08:00

50% Svavar - 50% Benidorm

Alltaf annað slagið þarf ég að segja sömu gömlu söguna um hvaða lönd ég hef heimsótt, og s...  

Meira
Bakþankar 06. feb. 2012 06:00

Til hamingju, Ísland!

Við höfum eignast Barnabókasetur– rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna....  

Meira
Bakþankar 04. feb. 2012 06:00

Tilvistarkreppa fausks

Það er erfitt að vera fauskur. Samkvæmt fleygum ummælum eru hvítir, kristnir, gagnkynhneig...  

Meira
Bakþankar 03. feb. 2012 06:00

Ég hata þig til dauðadags

Ég mun hata þig til dauðadags og óska þér alls ills í hverju einasta skrefi starfsferils þ...  

Meira
Bakþankar 02. feb. 2012 06:00

Moskumótmælin

Kirkjuhúsalandslag Íslands er að breytast. Verða moskur, hindúamusteri, sýnagógur og aðrar...  

Meira
Bakþankar 01. feb. 2012 06:00

Flutt að heiman

Inn um lúguna kom bréf um daginn. Það var stílað á heimasætuna en þó tekið fram að bréfið ...  

Meira
Bakþankar 31. jan. 2012 06:00

Um hvað eru hagfræðingar sammála?

Frá bankahruni hafa hagfræðingar verið nokkuð í sviðsljósinu. Stéttin hefur verið gagnrýnd...  

Meira
Bakþankar 28. jan. 2012 06:00

Hreinskilni einhleypa fólksins

Einhleypa fólkið. Hjörð án leiðtoga. Einmana úlfar og úlfynjur sem ráfa um með veiðihárin ...  

Meira
Bakþankar 27. jan. 2012 06:00

Takk

Ég æddi inn á gjörgæsludeild klukkan 23.45 á sunnudagskvöldi, útgrátin með úfið hár og í i...  

Meira
Bakþankar 26. jan. 2012 06:00

Æfðu þig, barn, æfðu þig

Ég man vel hvað ég hugsaði á mínum fyrstu tónleikum átta ára gömul: "Hvað er ég að gera fy...  

Meira
Bakþankar 25. jan. 2012 06:00

Mamma Bobba starfrækir mig

Allir þekkja þá tilhlökkun sem fylgir því að flytja að heiman. Að skapa sér eigin tilveru ...  

Meira
Bakþankar 24. jan. 2012 06:00

Svo lengi lærir sem lifir

Ég las sögu í háskóla. Hafði gaman af því, svona heilt yfir séð. Þegar árin liðu komst ég ...  

Meira
Bakþankar 23. jan. 2012 06:00

Heitstrenging Jay-Z

Í síðustu viku bárust þau tíðindi um heimsbyggðina að bandaríski rapparinn Jay-Z hefði sva...  

Meira
Bakþankar 21. jan. 2012 06:00

Lög unga fólksins

Um daginn settumst við nokkrir vinir inn á kaffihús og hugðumst eiga notalegt spjall um da...  

Meira
Bakþankar 20. jan. 2012 06:00

Falskur söngur heykvíslakórsins

Hver stal kökunni úr krúsinni í gær? Geir stal kökunni úr krúsinni í gær. "Ha, ég? Ekki sa...  

Meira
Bakþankar 19. jan. 2012 06:00

Góðan dag, kæri vinur

Ég stóð í forstofu Barnaskóla Reykjavíkur og horfði á kennara taka á móti drengjum í skóla...  

Meira
Bakþankar 18. jan. 2012 11:00

Á frímiða inn í nýja árið

Jólatréð stendur enn í stofunni hjá mér þó að komið sé fram yfir miðjan janúar. Skrautlaus...  

Meira
Bakþankar 17. jan. 2012 06:00

Fýluferð á föstudegi

Andskotinn, þetta er vesen,“ hugsaði ég með mér þegar ég uppgötvaði að ég hafði keyr...  

Meira
Bakþankar 16. jan. 2012 20:00

Með höfuðið uppi í rassgatinu

Nýtt upphaf hefur alltaf heillað mig, sama hversu stóran eða lítinn viðburð það felur í sé...  

Meira
Bakþankar 16. jan. 2012 07:00

Karlmennskan í fyrirrúmi

Ég komst aldeilis í hann krappan nýverið þegar ég gekk örna minna í háskólanum í Kordóba. ...  

Meira
Bakþankar 13. jan. 2012 06:00

Paraskevidekatriaphobia

Af því að það er gaman að skrifa þetta orð. Svo má líka prófa að segja það… ekki ver...  

Meira
Bakþankar 12. jan. 2012 06:00

Konungur dýranna er ekki ljón

Krúttfréttir af dýrum eru klassískt fréttaefni. Konungur dýranna í íslenskum fjölmiðlum er...  

Meira
Bakþankar 11. jan. 2012 06:00

Hált í hvoru

Þegar Jón Gnarr varð borgarstjóri biðu margir í ofvæni eftir því hvernig hann myndi spjara...  

Meira
Bakþankar 10. jan. 2012 06:00

Man einhver eftir Manning?

Þrátt fyrir takmarkalitla möguleika til að verða sér úti um upplýsingar og koma þeim á fra...  

Meira
Bakþankar 09. jan. 2012 07:00

Kaupmátturinn kemur í kvöld

Í upphafi árs fálmum við innst inn í hugarfylgsnin og athugum hvað leynist í myrkum skotun...  

Meira
Bakþankar 07. jan. 2012 06:00

Köllun forseta

Varla hafði forseti Íslands lokið nýársávarpi sínu þar sem hann gaf í skyn að hann myndi e...  

Meira
Bakþankar 06. jan. 2012 06:00

Trjálundur framliðinna gæludýra

Það er enginn maður með mönnum um þessar mundir nema komið hafi verið að máli við hann um ...  

Meira
Bakþankar 05. jan. 2012 06:00

Stóra áramótaheitið

Þorir þú? Áramót veita tækifæri til að núllstilla og forgangsraða. Framundan er opinn tími...  

Meira
Bakþankar 04. jan. 2012 06:00

Amstrið tekur yfir

Sviptingar urðu í Stjórnarráðinu um áramótin og stokkað var upp í skipan ráðuneyta. Sjálfs...  

Meira
Bakþankar 03. jan. 2012 06:00

Forsetakjör á nýjum forsendum

Komandi forsetakjör kann að verða ólíkt þeim fyrri í ljósi þess að sitjandi forseti, Ólafu...  

Meira
Bakþankar 02. jan. 2012 14:45

Megi rokkið lifa þó ég deyi

Undanfarin þrjú ár hef ég verið heimagangur hjá fjölskyldu einni í bænum Baza hér í Andalú...  

Meira
Bakþankar 31. des. 2011 12:51

Ár fáránleikans

Árið 2011 er á enda. Þvílíkt ár. Eitt það minnisstæðasta er hiklaust framtakssemi tveggja ...  

Meira
Bakþankar 29. des. 2011 06:00

Þetta fer eins og við segjum!

Sírenurnar vældu og þykkur reykjarmökkurinn fyllti allt. Ringulrei...  

Meira
Bakþankar 28. des. 2011 06:00

Skammarleg íslensk þögn

Bandaríkjamenn nutu samúðar heimsbyggðarinnar allrar eftir árásirnar á New York fyrir tíu ...  

Meira
Bakþankar 24. des. 2011 06:00

"Bara helgisaga“

Sennilega hefur engin flökkusaga farið eins víða og sagan af fæðingu Jesú. Jólaguðspjallið...  

Meira
Bakþankar 23. des. 2011 06:00

Dauði, skattar og jólin koma

Jæja. Þá er runnin upp blessuð Þorláksmessan. Þau okkar sem þekkja daginn betur undir heit...  

Meira
Bakþankar 22. des. 2011 06:00

Jólasaga sem virkar

Hver bekkurinn á fætur öðrum gekk frá Melaskóla yfir í Neskirkju á mánudaginn var. Yngstu ...  

Meira
Bakþankar 21. des. 2011 06:00

Gleðin í gjöfunum

Ragnheiður TryggvadóttirÁ jólunum verðum við bljúg í hjarta og viljum sýna okkar nánustu v...  

Meira
Bakþankar 20. des. 2011 07:00

Stærsta frétt ársins

Bandaríska tímaritið Time velur í desember ár hvert þann einstakling sem þykir hafa markað...  

Meira
Bakþankar 19. des. 2011 06:00

Bíóbörn

Getið þið gert ykkur í hugarlund hvað það væri sérkennilegt að sjá börn grípa fyrir eyrun ...  

Meira
Bakþankar 16. des. 2011 06:00

Jóladraumur

Jóladraumar eru í mörgum litum. Sumir láta sig dreyma um hvít jól af snjó og frosti, fyrir...  

Meira
Bakþankar 15. des. 2011 10:12

Kona í flóði

Ég ætti örugglega ekki að vera að skrifa þennan pistil en geri það nú samt. Hann verður ti...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Bakþankar / Góða mamma