Ósamrćmd próf

Fréttablađiđ Fastir pennar 26. febrúar 2010 06:00
Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek skrifar:

Í vikunni mátti lesa fréttir þess efnis að hverfisskólarnir væru að koma aftur samkvæmt nýjum innritunarreglum fyrir framhaldsskólana, en samkvæmt þeim þurfa skólarnir að taka in 45% af nemendum úr skólum sem liggja í grenndinni. Hér er um að ræða óþarfa skerðingu á valfrelsi nemenda auk þess sem verið er að skekkja samkeppni bæði á milli nemendanna og framhaldsskólanna sjálfra.

Það má síðan spyrja sig hvort verið sé að gera nokkrum greiða með því að taka hann inn í skóla sem hann kæmist ekki inn ella. Undirritaður upplifði það sjálfur að fara á sínum tíma í menntaskóla þar sem hluti nemenda kom inn á hverfisskólakvótanum. Margir þeirra stoppuðu stutt.

Endurkoma hverfisskólafyrirkomulagsins er því miður annað skref á jafnmörgum árum í átt til ósanngjarnara inntökukerfis inn í framhaldsskóla, allt gert, að maður gæti ímyndað sér, til þess að hindra heilbrigða samkeppni milli grunnskólanna og forða því að þeir þurfi að horfast í augu við gæði eigin menntunar. Fyrsta skrefið var aflagning samræmdra prófa.

Tvenn rök voru helst notuð gegn samræmdu prófunum. Í fyrsta lagi áttu þau að stýra kennslunni um of og í öðru lagi að valda nemendum streitu.
Um námsefni í grunnskóla gilda ákveðin viðmið sem koma fram í aðalnámskrá. Þetta bindur nú þegar hendur kennara varðandi það hvað þeir eigi að kenna. Fyrst að viðmiðin eru samræmd þá má alveg eins hafa samræmd próf úr þeim viðmiðum. Samræmingin hefur þegar átt sér stað. Það var síðan ekki endilega upplifun mín sem nemanda í grunnskóla, þó ég geti ekki talað fyrir aðra, að grunnskólarnir væru fullir af kennurum sem vildu fara ótroðnar slóðir í kennslu, en þurftu að halda að sér höndum vegna hinna stalinísku samræmdu prófa. Enda var kennslan í 10. bekk afar svipuð og í 9. bekk, bara markvissari.

Samræmdu prófin höfðu ákveðinn óumflýjanleikabrag yfir sér, sem var að mörgu leyti gott. Menn vissu að þau kæmu alltaf að lokum, hvort sem mönnum líkaði betur eða verr, og það sem í þeim stæði væri í höndum annarra en þeirra eigin kennara. Samræmda prófinu var alveg sama þó svo að kennarinn hafi verið lasinn í tvær vikur eða að auðvelt hafi verið að fá hann til að tala um kvikmyndir eða tísku þegar hann átti að vera að kenna. Samræmda prófið spilaði eftir sínum eigin reglum.

Hvað varðar það mikla álag sem lagt var á unga fólkið og streitunni sem því fylgdi þá er torséð að það hverfi nú. Í stað samræmdra prófa sem öllu máli skiptu, koma nú ósamræmd lokapróf sem öllu máli skipta líka. Það er nefnilega svo að mikil­vægir áfangar á lífsleiðinni valda flestum okkar einhvers konar streitu. Það er spurning hvort það sé rétta viðhorfið að vilja útrýma þessum mikilvægu áföngum með öllu, eða fresta þeim í lengstu lög. Það dregur ekki úr streitu til lengdar að þurfa aldrei að takast á við neitt sem stressar. Það gerir hlutina bara verri.

Undirritaður er raunar enginn sérstakur aðdáandi þess að vinna heils vetrar sé metin í þriggja tíma skriflegu prófi. Það má líka vel taka undir að það vægi sem samræmdu prófin fengu við innritun í framhaldsskóla hafi ef til vill verið fullmikið. En brotthvarf þessarar mælistiku hefur ekki orðið nemendum og framhaldsskólum til góða. Það er til dæmis mjög erfitt að ætlast til þess af kennurum að þeir gæti hófs í einkunnagjöf þegar þeir hafa enga tryggingu fyrir því að aðrir kennarar í öðrum skólum freistist ekki til að blása hressilega í einkunna­blöðrurnar. Hver verður niðurstaðan? Einkunnaverðbólga lík þeirri sem sást á seinasta ári.

Líklegast væri best að gefa samræmdu könnunarprófunum sem þreytt eru á haustin örlítið meira vægi þannig að þau giltu þriðjung eða fjórðung á móti skólaeinkunn. Með því móti myndu skólarnir fá aðgang að einkunnum úr prófunum og gætu reynt að tryggja að ekki hallaði á umsækjendur úr einstaka skólum. En ef marka má fréttir undanfarinna missera þá skortir verulega á að núverandi innritunarkerfi uppfylli væntingar ungs fólks um sanngirni og jafnræði.





Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getađ fariđ inn á vefsíđur Íbúđa...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvćđaveiđigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síđustu viku međ talsverđum lúđrablćstri svokallađa fjárfestingaáćt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferđarráđherra og sérgreinalćknar?

Í umrćđunni undanfariđ hefur veriđ tíđrćtt um gjöld vegna komu til sérfrćđilćkna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftiđ mýta?

Sćl, Sigga Dögg. Ég las greinina ţína um mýtuna um ţröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Ósamrćmd próf