Við búum öll í gulri rennibraut

Fréttablaðið Aðsendar greinar 25. febrúar 2010 06:00
Guðmundur Andri Thorsson skrifar um bæjarmál á Álftanesi
Guðmundur Andri Thorsson skrifar um bæjarmál á Álftanesi

Ýmsir velta fyrir sér um þessar mundir hvernig standi á því að svo illa er komið fyrir sveitarfélaginu Álftanesi. Sjálfur ber ég ekki skynbragð á fjármál og get ekkert um þau sagt, en óneitanlega hvarflar að manni að lítill rekstrargrundvöllur kunni að vera fyrir því að svefnbær með engri atvinnustarfsemi myndi sjálfstætt sveitarfélag, frekar en til dæmis Árbærinn eða Grafarvogur. Skuldbindingar vegna yfirstandandi og komandi framkvæmda hafa líka augljóslega ekki tekið mið af þessari einföldu staðreynd: föstum tekjum sveitarfélagsins.

Og almennt talað: Þó að í mismiklum mæli sé enn sem komið er, súpum við öll seyðið af því að landinu hefur áratugum saman verið stýrt af lögfræðingum sem virðast hafa impróvíserað lög og reglur, siði og viðskiptahætti frá degi til dags, með þeim afleiðingum að íslenskt samfélag er nú gjörvallt einn útúrsnúinn vafningur.



Sagan af rennibrautinni

Mér verður stundum hugsað til rennibrautarinnar. Við búum fjölskyldan við hafið á norðanverðu nesinu, smáspöl frá aðalbyggðinni og höfum stundum þurft, íbúarnir í götunum hérna, að ræskja okkur svolítið til að ná eyrum bæjaryfirvalda, sem voru meira með hugann við byggð sem var ekki til - hinn nýja miðbæ: „uppbygginguna".

Ekki var nú kröfugerðin mikil: börnin hérna vildu örlítið betri Róló; gobbuhesta sem virkuðu, skárri sandkassa og umfram allt almennilega rennibraut, enda naumast til sá Róló með sjálfsvirðingu sem ekki er með rennibraut. Að öðru leyti var þetta stór og fínn Róló: með smá brekku þar sem var gaman að renna sér á sleðum á veturna og grasflöt þar sem hægt var að fara í alls konar sjálfsprottna leiki: Brennó, Kýló, meira að segja gekk amerískt Rúbbí-æði eitt sumarið. Það vantaði bara almennilega rennibraut. Krakkarnir söfnuðu undirskriftum og fóru á fund bæjarstjórans, sem tók við erindinu án þess að koma til hugar að bregðast við því. Svo kom annar bæjarstjóri sem líka var yfir það hafinn að hlusta á krakka suða um rennibraut - en þriðji bæjarstjórinn ákvað að bregðast við óskunum. Á eigin forsendum: Sett var pínulítil rennibraut úr plasti - og eiginlega verri en engin - en Rólóinn að öðru leyti skipulagður upp á nýtt af stórhug sem enginn hafði beðið um: grasflötin litla þar sem allir krakkar höfðu leikið sér saman óháð aldri og kyni var malbikuð og þar sett upp himinhá karfa sem ég veit ekki til að nokkru sinni hafi verið notuð enda miðuð við tveggja metra slöttólfa; skorið var neðan af sleðabrekkunum góðu og sett í staðinn listrænt grjót, sem kannski er flottur landslagsarkítektúr en þar mun aldrei neinn renna sér framan. Rólóinn er tómur, dautt svæði, en sjálfsagt voða fínn. Með pínkulítilli plastrennibraut.



Gott á ykkur!

Rennibraut, einmitt. Var ekki einhver að biðja um rennibraut? Jú, eitthvað rámaði menn í það, og ákváðu að sýna nú engan smásálarskap heldur reisa veglegustu rennibraut landsins við sundlaugina. Hún er afskaplega gul og maður er þrjú ár á leiðinni upp í hana. Hún er orðin helsta kennileiti þessa samfélags sem áður var þekkt fyrir lágreista og snotra byggð og fagra náttúru.

Og nú búum við öll í gulri rennibraut, svo vísað sé óbeint í gamla Bítlalagið. Svona fer þegar ekki er hlustað á fólkið; þarfir fólksins eru nefnilega ósköp temmilegar. Því fólk er yfirleitt heldur gott - meira að segja fólk sem gerir skyssur. Jónas Kristjánsson - einhver umsvifamesti lastari þjóðarinnar sem sumir líta til í því skyni að fá af því fregnir hvað þeim eigi að finnast - fer á bloggi sínu þann 21.02. hinum verstu orðum um Álftnesinga og vill augljóslega kveða snarlega niður lofsverða viðleitni íbúa hér til að bera hönd fyrir höfuð sér með stofnun hagsmunasamtaka; Jónas telur yfirvofandi hörmungar rétt mátulegar á pakkið. Vantar bara að hann skrifi: „helvítin ykkar". Hann horfir fullur fyrirlitningar af sínu sómakæra Seltjarnarnesi og átelur íbúa Álftaness harðlega fyrir að sjá nú fram á stórauknar álögur, minni þjónustu og verðhrun eigna. Það hvarflar ekki að honum að þeim byrðum eigi að dreifa. Hann er eins og auðugur danskur pensjónisti í Gladsaxe að fussa yfir Íslendingum.



Farvegur sjálfshaturs

Svipuðum viðhorfum hefur maður fengið að finna fyrir furðu víða í þjóðlífinu og þau eru eiginlega verst af öllu: þessi skortur á samkennd, þessi andúð, þessi ófrjóa reiði - þessi Þórðargleði. Hér á nesinu búa ekki verðbréfagosar, aflandseyjaprinsar, skortstöðuhákar eða vafningafurstar, hérbýr ósköp venjulegt fólk úr flestum lögum þjóðfélagsins, upp til hópa duglegt og sómakært fólk, sem ekkert hefur séð af þessum ævintýralegu upphæðum sem því er tjáð að það skuldi, og botnar enda ekkert í því hvernig þær gátu vaxið svona og margfaldast: þetta er okkar Icesave. Fólk sem verður fyrir fjárhagslegum skakkaföllum af völdum aðila sem það hefur skrifað upp á fyrir af misráðnu trausti þarf ekki fyrst og fremst á því að halda að heyra hvað það sé miklir vitleysingar - að minnsta kosti ekki átján sinnum í röð. Það þarf stuðning og skýrar áætlanir.

Svo illa er komið fyrir þjóðinni að sumu fólki virðist fróun í því að sjá sveitarfélag sem er enn verr statt en þjóðfélagið almennt, og finnur jafnvel einhvers konar sjálfshatri farveg í því að veitast að íbúum Álftaness fyrir að hafa kosið til trúnaðarstarfa fólk sem þeir héldu að myndi varðveita sérstöðu samfélagsins og náttúrufar en tók upp á því að reisa sér og öðrum rennibraut um öxl.

En við búum öll í gulri rennibraut. Vandamálin hér á nesinu bíða handan við næsta leiti hjá öðrum sveitarfélögum: allt þjóðfélagið var keyrt áfram á óraunhæfum lánum og lánavæntingum, pappírsauði, óskipulagi, glundroða - klikkun. Þegar við getum loksins slitið okkur frá Icesave-málinu þurfum við að horfast - öll - í augu við að skuldir íslensks samfélags eru yfirþyrmandi. Efnahagskerfið hér reyndist í grundvallaratriðum reist á röngum forsendum. Það er okkar vandi. Okkar allra.

Nema náttúrlega Jónasar Krist­jáns­sonar.



Tekjugrundvöllurinn brostinn

Smeykur er ég um að tómt mál sé að tala um að Álftanes eigi sér raunhæfa framtíð sem sjálfstætt sveitarfélag, eins og komið er málum. Það er samfélaginu lífsnauðsyn að tengjast stærri einingu og þar horfum við mörg til Reykjavíkur, enda hefur Garðabær enga burði - og hvað þá löngun til - að taka yfir rekstur samfélagsins hér. Ríkisstjórnin hefur tekið þann pól í hæðina að „leita allra leiða til að aðlaga rekstur sveitarfélagsins að þeim tekjugrundvelli sem er til staðar", eins og ráðherrann Kristján Möller orðaði það í umræðum sem Magnús Orri Schram stóð fyrir á alþingi um vanda sveitarfélagsins: þetta er vissulega loðmullulegt orðalag, en þó hátíð hjá hinu sem kom í framhaldinu og minnir á að stjórnmálamenn geta verið óskiljanlegri en Foucault: „Það getur ekki verið öðruvísi en að hægt sé að ætlast til þess að aðrir greiði fyrir þá þjónustu…" Hafi ráðherrann ætlað að segja - sem ég óttast - að ekki sé hægt að ætlast til þess að samfélagið í heild sinni hlaupi undir bagga með Álftnesingum til að halda eðlilegu þjónustustigi í skólamálum og öðru æskulýðs- og velferðarstarfi og að sveitarfélagið eigi bara að fá að verða „annars flokks" eins og Magnús Orri varaði við - þá er stefna Samfylkingarinnar í velferðarmálum önnur en mig minnti og nær amerískri repúblikanasiðfræði Jónasar Kristjánssonar. En því fyrr sem ráðamenn átta sig á því að „tekjugrundvöllurinn" er hreinlega ekki „til staðar" í svo skuldsettu sveitarfélagi einu og óstuddu - því betra.

Höfundur er rithöfundur og íbúi á Álftanesi.


Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / / Við búum öll í gulri rennibraut