Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður og skoraði þriðja mark Lilleström í 3-2 sigri á Zenit St Petersburg á La Manga æfingamótinu á Spáni. Björn Bergmann kom norska liðinu í 3-1 aðeins tíu mínútum eftir að hann hafði komið inn á sem varamaður.
Björn Bergmann skoraði markið sitt af stuttu færi eftir hornspyrnu á 79. mínútu leiksins en hornspyrnuna hafði hann unnið eftir mikinn einleik í gegnum vörn rússneska liðsins.
Emmanuel Nosakhare Igiebor og Lars Kristian Eriksen komu Lilleström í 2-0 en Björn Bergmann kom inn fyrir Olivier Occean sem byrjaði í framlínu liðsins ásamt Arild Sundgot.
Stefán Logi Magnússon stóð í marki Lilleström allan leikinn. Í fyrra markinu slapp Aleksandr Kerzhakov einn í gegn og skoraði en síðara markið var skallamark af stuttu færi þar sem Stefán Logi hefði getað gert betur með að grípa inn í fyrirgjöfina.