Tuttosport heldur því fram í dag að landsliðsþjálfari Ítalíu, Marcello Lippi, muni taka við sem forseti Juventus eftir HM í sumar.
Hann myndi þá taka við starfinu af Jean-Claude Blanc sem yrði þá framkvæmdastjóri félagsins.
Juve er í mikilli naflaskoðun þessa dagana enda gengur hvorki né rekur hjá liðinu.
Félagið á enn fremur eftir að ráða stjóra til langframa en Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur verið sagður á leið til Juve næsta sumar.