Óstjórn á Álftanesi, fullyrðir Þór Saari þingmaður

Vísir Aðsendar greinar 08. febrúar 2010 15:25
Kristinn Guðmundsson.
Kristinn Guðmundsson.
Kristinn Guðmundsson skrifar:

Mér er málið skylt og þar sem ég er þingmanninum ósammála vil ég svara honum. Ég lagði af heilum hug hönd á plóg með Álftaneshreyfingunni í tilraun til að snúa samfélaginu úr þröngri stöðu til betri vegar. Strax í upphafi, 2006, var ljóst að reglubundnar tekjur sveitarsjóðs dugðu vart fyrir kostnaði af þjónustu við íbúana. Svigrúm til framkvæmda var aðeins fengið með því að selja eignir eða taka lán og flestar eigur sveitafélagsins höfðu þá þegar verið seldar. Þar sem íbúafjöldi á Álftanesi hafði vaxið dæmalaust hratt árin á undan og enn var framundan fyrirsjáanleg fjölgun, þá þurfti að stækka grunnskólann og bæta við rekstur leikskóla, koma upp aðstöðu fyrir íþróttaiðkun, byggja þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara og almenna félagsstarfsemi, svo eitthvað sé nefnt. Sumar af þessum framkvæmdum voru reyndar þegar í undirbúningi eða að ljúka.

Án þess að eyða púðri í deilur um hver ákvað hvað og hvenær, þá er flestum ljóst að vandi sveitarfélagsins helltist ekki yfir sveitarfélagið á einu kjörtímabili. En skellurinn kom með bankahruninu þegar lánin bólgnuðu og forsendur góðra áforma brustu. Þá dró úr líkum á að stefna Álftaneslistans næði að uppfylla væntingar um betri tíð með blóm í haga. Steininn tók úr er kvarnaðist úr liði meirihlutans og þegar oddviti nýs meirihluta lýsti því yfir að sveitarfélagið væri "tæknilega gjaldþrota" voru skuldir sveitarfélagsins nánast samstundis gjaldfelldar og tekjur afskrifaðar. Með því var nánast séð til þess að viðsnúningurinn sem Álftaneslistinn stóð fyrir og róðurinn móti straumnum undanfarin ár yrði til lítils. Nýr meirihluti, sem hefur ákveðið að leggja árar í bát um leið og hann tók við, virðist ætla að gera endanlega út um að framtíðardraumar Álftnesinga verði hljómur einn. En framtíðarsýnin, sem Álftnesingar völdu árið 2006, er engu að síður þess virði að verja hana og styðja með ráði og dáð. Í megindráttum gengur hún út að leggja rækt við það góða samfélag sem fyrir er og nýta þá sérstöðu sem Álftanes hefur upp á að bjóða á höfuðborgarsvæðinu til atvinnu í byggðarlaginu. Það tryggir verndun þeirrar fjölbreyttu og spennandi náttúru, sem helst í hendur við víðáttumikil opin svæði sem henta til útivistar og er viðeigandi umhverfi fjölda minna um sögu Íslendinga frá þjóðveldi til lýðveldis og forsetasetrinu á Bessastöðum. Við í Álftaneslista höfum ekki lagt okkar síðasta orð inn í baráttuna um þessa framtíðarsýn.

Fjárhagsleg staða sveitarfélagsins er vissulega slæm, en ekki má gleyma að mestu máli skiptir að hverju verður stefnt. Hvaða póstnúmer verður á bréfunum sem er dreift í húsin er annað mál. Í fyrsta umgangi er rétt að fara í saumana á reiknireglum Jöfnunarsjóðs og lögboðnar skyldur ríkisins. Öðruvísi verður Álftnesingum ekki tryggð sanngjörn meðferð sinna mála. Síðan má skoða möguleika til að hagræða rekstur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í þeim efnum er augljóslega margt aðkallandi og því væri fásinna að mæla gegn gagngerri endurskoðun, en það á ekki að rugla þessum málum saman.

Þór Saari er ekki sómi af að slá um sig, eins og hann gerir í grein sinni í Mbl 3. febrúar. Þar með tekur hann sér stöðu með fölmörgum öðrum sem mála skrattann á vegg. Vissulega er af hinu góða að benda á galla hjá forystumönnum, en það þarf að vera vel rökstutt og gert af sanngirni í stað þess að ala á misskilningi með sleggjudómum og rangfærslum. Það er heldur ekki vænlegt að rífa bara niður án þess að koma með álitlegar lausnir. Skrif Þórs bera annað hvort vitni um að hann er illa upplýstur um viðkomandi málefni Sveitarfélagsins Álftaness, eða að hann bregður fyrir sig lýðskrumi á kostnað sveitunga sinna. Ef hann og aðrir kjósendur á Álftanesi eru óánægðir með alla þá sem bjóða fram krafta sína í sveitarstjórn þá eru þeir kostir í stöðunni að annað hvort finna aðra hæfari einstaklinga sem vilja annast verkin eða beita sér fyrir breytingu á því sem fyrir er. Innantómar fullyrðingar um að Álftaneslistinn hafi brugðist kjósendum sínum er jafn vitrænt og að berja tóma tunnu. Ég fullyrði að unnið var af heilindum að þeim markmiðum sem kynnt voru fyrir kosningarnar, enda hefur ekki verður sýnt fram á annað. Áformin voru upp á borði og ekki reynt að fela að þau kostuðu þá fjárhagslegu áhættu sem fylgir lántökum. Á móti lánum var gert ráð fyrir tekjum í því sem talið var fyrirsjáanleg framtíð. Þjóðin veit hvernig það fór og því miður er að koma í ljós að fleiri hafa bitið í það súra epli og eiga nú í vök að verjast. Einustu svik Álftaneslista við kjósendur eru þau að tveir bæjarfulltrúar sem Álftaneshreyfingin treysti til að taka sæti á framboðslista sínum ákváðu að fara aðra leið. En landslög leyfa slíkt og því fæst ekki við það ráðið, sama þótt um augljósa brotalöm sé að ræða í þeirri blöndu af lýðræði og flokksræði sem við búum við. Þór og bloggvinir hans eru greinilega í hópi með þeim sem eru óánægðir. Ef þessir einstaklingar eru jafn yfirburðagreindir og látið er í veðri vaka í bloggskrifunum (jafnvel í skjóli nafnleyndar), þá hefði fyrir löngu átt að vera kominn fram valmöguleiki sem dygði til úrbóta.

Það var ekki óstjórn sem hrjáði samfélagið á Álftanesi, en samfélagið hefur á yfirstandandi kjörtímabili liðið fyrir ómálefnaleg átök milli fylkinga sem deila eftir línum stjórnmálaflokka líkt og á Alþingi. Í því er Þór enginn aukvisi heldur. Þór væri meiri sómi af að beita sér á þingi fyrir málstað Álftnesinga og stuðla að því að þeir fái sanngjarna meðferð sinna mála af hálfu ríkisins. Ekki væri verra að hann fjallaði um það í fjölmiðlum líka. Sjá má á vefsíðunni www.alftanes.net hvaða stefnumál Álftaneslistinn setti fram og forvitnilegt er að skoða samhljóminn í þeirri framtíðarsýn og Aðalskipulagi Álftaness 2005 - 2024.

Álftaneshreyfingin hefur ávallt hvatt íbúana til þátttöku í samfélagslegum viðfangsefnum. Þá sýn eigum við sameiginlega með Þór. Sama má segja um stefnu í náttúruvernd. En, kjósendur völdu Álftaneshreyfinguna til forystu m.a. til að endurvinna deiliskipulag fyrir miðsvæðið og höfnuðu því sem þá var nýbúið að samþykkja af fyrri meirihluta. En með fyrra skipulaginu erfðust miklar kvaðir um byggingamagn auk þess sem þurfti að sjá til þess að með lóðarsölu fengist fé til að greiða niður lán sem tekin voru þegar landspildan var keypt af fyrri eigendum. Við bankahrunið varð svo alger forsendubrestur hvað áform í fjárhagsmálum varðar, ekki ósvipað því sem margt ungt fólk upplifði eftir að hafa keypt húsnæði fyrir nýstofnaða fjölskyldu sína, fjárfestingar sem því var sagt að það myndi ráða vel við að borga niður miðað við launatekjur og framtíðarspár lánastofnanna. Kallast það fyrirhyggjuleysi og óstjórn?

Ef valkostur hefði verið í boði árið 2006, með sannfærandi áformum um eitthvað svipað og Álftaneshreyfingin setti fram, utan þess sem kalla má útþenslu, þá er aldrei að vita nema ég hefði hrifist og gefið mitt atkvæði. En hverjum gagnast að tala aðeins um glötuðu tækifærin og hvað allt er ömurlegt og leggja til óskilgreinda endurmönnun í brúnni. Þá vel ég fremur að standa áfram fyrir góðri framtíðarsýn og vinna að settu marki. Álftaneshreyfingin er óháð samtök og öllum frjálst að vinna innan þeirra til að marka framtíð Álftaness með lýðræðislegum umræðum og ákvörðunum. Ég hvet því alla til að kynna sér Álftaneshreyfinguna sem vettvang bæjarmála og afla sér upplýsinga um hvað þau hafa staðið fyrir áður en rokið er til að stofna ný samtök sem yrðu líklega afar svipuð.

Fundur Álftaneshreyfingarinnar 1. febrúar ákvað að bjóða á ný fram fulltrúa á Á-lista við sveitarstjórnakosningarnar í maí. Undirbúningur er hafinn, en hreyfingin hvetur alla sem vilja leggja sitt af mörkum fyrir gott samfélag og varðveislu sérkenna Álftaness á höfuðborgarsvæðinu til að gefa sig fram og taka þátt í mótun framboðslistans og baráttumála á stefnuskrá hans. Netfang Álftaneshreyfingarinnar er alftaneshreyfingin@gmail.com og öllum viðeigandi tölvupósti mun verða svarað.

Kristinn Guðmundsson, fulltrúi Álftaneslista í skipulags- og byggingarnefnd





Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Óstjórn á Álftanesi, fullyrðir Þór Saari þingmaður