Vísir, 08. feb. 2010 22:53

Umfjöllun: Björgvin hetja Haukanna í Hafnarfjarđaslagnum

mynd
Björgvin Ţór Hólmgeirsson skorar eitt marka sinna í kvöld. Mynd/Vilhelm

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar:

Í kvöld fór fram Hafnarfjarðaslagur í N1-deild karla í handbolta er FH tók á móti Haukum í Kaplakrika. FH-ingar byrjuðu veisluna snemma og gæddu sér á grilluðum hamborgurum á meðan þeir bræður Friðrik Dór og Jón Ragnar spiluðu og sungu til að koma áhorfendum í rétta skapið. Það reyndist þó ekki nóg því Björgvin Þór Hólmgeirsson stal sigrunum fyrir Hauka á loka sekúndu leiksins og allt varð brjálað í Hafnarfirði.

Leikurinn fór vel af stað og mikil eftirvænting í báðum liðum eins og er alltaf fyrir þessa leiki, slaginn um Hafnafjörð. Pálmar Pétursson markvörður FH-inga hefði getað sett skilti fyrir utan teig og látið gestina vita að það væri lokað hjá honum þetta kvöldið. Hann varði hvað eftir annað og gaf mikinn kraft í FH-ingana.

Haukarnir virkuðu frekar smeykir og klaufalegir í einföldum aðgerðum. Voru lengi í gang og virtust ekki vera fullkomlega klára í leikinn. Haukamaðurinn Björgvin Þór Hólmgeirsson var eini leikmaður gestanna sem var að finna leiðina framhjá Pálmari í marki heimanna og skoraði alls sjö mörk í fyrri hálfleik.

Það varð allt brjálað í Kaplakrika þegar Ólafur Gústafsson meiddist er hann reyndi að svífa í gegnum vörn Hauka-liðsins, dæmdur var ruðningur en Ólafur lá í teignum þjáður. Haukar nýttu sér það og voru snöggir í sókn en Pálmar Pétursson varði stórkostlega og stemningin frábær í höllinni.

Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, tók leikhlé þegar tíu sekúndur lifðu eftir af fyrrihálfleik. Haukar voru með boltann og Aron Kristjánsson var klókur. Setti Sigurberg Sveinsson inn á og Aron Rafn úr markinu og þar með voru þeir manni fleiri í sókninni og skoruðu mjög mikilvægt mark. Staðan í hálfleik, 13-12, í hörku leik.

Það var svo leiks í seinni hálfeik sem að gestirnir komust yfir í fyrsta skipti. Það gaf þeim kraft og sá kraftur fylgdi liðinu fram á lokastundu. Spennan var gífurleg í Kaplakrika í kvöld og enginn gat séð fyrir um hvort þeir hvítu eða rauðu gengu brosandi út úr húsinu þetta kvöldið.

Heimamenn voru klaufar í lokin og virtust ekki ráða við spennuna. FH-ingar voru í sókn er staðan var 23-23 og tvær mínútur eftir á leik klukkunni. Gestirnir nýttu sér það og voru snöggir fram í sókn og skoruðu, þar var að verki Bjarki Jónsson.

Ólafur Guðmundsson steig upp í lokinn og svaraði fyrir sitt lið. Hann jafnaði leikinn, 24-24, og gestirnir í Haukum með leikinn í hendi sér fara fram í sókn þegar innan við mínúta var eftir.

Þeir biðu með það að klára dæmið fram á loka andartak leiksins en það var sett í hendurnar á stórskyttunni Björgvini Þór Hólmgeirssyni, hann þakka fyrir sig með þrumufleyg og tryggði þar með dramatískan baráttusigur í þessum stórskemmtilega Hafnarfjarðaslag, lokatölur sem fyrr segir, 24-25 Haukum í vil.

Pálmar Pétursson var frábær í marki heimamanna með tuttugu tvö varin skot. Félagi hans og bronsstrákurinn Ólafur Guðmundsson hafði hægt um sig og vildu eflaust margir meira frá honum. Hann skoraði fjögur mörk en var sterkur í vörninni sem og allt liðið.

Hauka-liðið var lengi í gang en það var augljóst hver hetja þeirra var í kvöld, Björgvin Þór Hólmgeirsson var frábær í sókninni með níu mörk og var lykillinn að sigri Hauka í þetta sinn.

Tölfræði leiksins:

FH-Haukar 24-25 (13-12)

Mörk FH (skot): Ásbjörn Friðriksson 5 (10), Ólafur Guðmundsson 4 (11), Bjarni Fritzon 4 (4), Örn Ingi Bjarkason 3 (5), Sigursteinn Arndal 2 (3), Bjarki Sigurðsson 2 (3), Jón Heiðar Gunnarsson 2 (4), Ólafur Gústafsson 2 (4).

Varin skot: Pálmar Pétursson 22/47 = 47%
Hraðaupphlaup: 7 ( Ólafur Guðmunds 2, Bjarni 2, Ólafur Gústafsson, Jón Heiðar, Örn Ingi, Ásbjörn)
Fiskuð víti: 2 (Bjarni, Jón Heiðar)
Utan vallar: 4 min.



Mörk Hauka (skot): Björgvin Hólmgeirsson 9 (18), Pétur Pálsson 3 (4), Freyr Brynjarsson 3 (8), Gunnar Berg Viktorsson 2 (2) 1/1, Einar Örn Jónsson 2 (2), Elías Már Halldórsson 2 (4), Þórður Rafn Guðmundsson 1 (1), Guðmundur Árni 1 (2), Þórður Rafn 1 (2), Sigurbergur Sveinsson 1 (7)

Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 10/34 = 29 %. Aron Rafn Eðvarðsson 6 (1/2) = 25 %.
Hraðaupphlaup: 10 ( Björgvin 3, Freyr 2, Pétur Páls 2, Þórður, Einar, Elías)
Fiskuð víti: 1 (Pétur)
Utan vallar: 8 min.


Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson, fínir.




Fleiri fréttir

Handbolti 19. mar. 2010 13:30

Vignir fer til Hannover í sumar

Vignir Svavarsson er búinn ađ semja viđ ţýska félagiđ Hannover-Burgdord eins og búist var ...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 22:56

N1-deild karla: Sigrar hjá Haukum, Fram og Val

Fjórir leikir fóru fram í N1-deild karla í kvöld. Akureyri vann FH og Haukar, Fram og Valu...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:56

Jónatan: Greddan var okkar megin

Jónatan Magnússon segir ađ Akureyringa hafi einfaldlega hungrađ meira í sigur en FH-inga. ...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:40

Einar Andri: Akureyringar voru beittari

Einar Andri Einarsson kennir slakri vörn um lélegan leik FH í fyrri hálfleik gegn Akureyri...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:32

Rúnar: Liđiđ er ađ ţróast mikiđ

Rúnar Sigtryggsson, ţjálfari Akureyrar, var brosmildur eftir góđan sigur á FH í kvöld. Lok...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 20:51

Umfjöllun: Akureyri drap FH-grýluna

Akureyri vann góđan 33-30 sigur á FH í N-1 deild karla í handbolta í kvöld. Akureyri var m...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 11:00

Tveir nýliđar í kvennalandsliđinu gegn Bretlandi

Júlíus Jónasson, ţjálfari kvennalandsliđsins í handbolta, hefur valiđ sextán manna hóp fyr...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 22:11

N1-deild kvenna: Valur lagđi Stjörnuna - Víkingur skorađi 8 mörk

Valsstúlkur eru enn ósigrađar í N1-deild kvenna eftir sterkan útisigur á Íslandsmeisturum ...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 15:00

Ná Stjörnustúlkur nú sigri gegn Val?

Ţrír leikir eru í N1-deild kvenna í dag. Stórleikur kvöldsins er í Mýrinni í Garđabć ţar s...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 06:00

Skemmtileg tilbreyting ađ berjast um titla

Ţađ leyndi sér ekki á svipbrigđum Björgvins Hólmgeirssonar í gćr ađ ţađ kom honum á óvart ...  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 20:30

Alfređ: Aron á margt sameiginlegt međ Lövgren

Lćrisveinar Alfređs Gíslasonar í Kiel fóru illa ađ ráđi sínu um helgina er liđiđ tapađi ge...  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 12:34

Aron og Björgvin bestir í umferđum 8-14

HSÍ hélt blađamannafund í dag og tilkynnti um úrvalsliđ umferđa 8-14 í N1-deild karla....  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 08:00

Einar Jónsson: Viđ erum međ betra liđ

Einar Jónsson, ţjálfari kvennaliđs Fram, var ađ vonum svekktur eftir sex marka tap, 15-21,...  

Meira

Handbolti 14. mar. 2010 18:26

Framkonur töpuđu seinni leiknum međ sex mörkum og eru úr leik

Fram er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir sex marka tap á móti Metalurg, 15-21, í sei...  

Meira

Handbolti 14. mar. 2010 16:38

Lino Cervar horfđi á Framstelpurnar vinna Metalurg í gćr

Lino Cervar, landsliđsţjálfari karlaliđs Króatíu, var á međal áhorfenda ţegar Framkonur un...  

Meira

Leit á Vísi

Íţróttir


Nýtt á Vísi

Nćrmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöđ 2 og Vísi


Ađgengisvirkni