Vísir, 06. feb. 2010 17:59

N1-deild kvenna: Valsstúlkur enn taplausar á toppi deildarinnar

mynd
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir. Mynd/Arnþór

Ómar Þorgeirsson skrifar:

Valur vann góðan 27-22 sigur gegn Haukum í toppbaráttu N1-deildar kvenna í handbolta að Hlíðarenda en staðan í hálfleik var jöfn 12-12.

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir átti sannkallaðan stórleik fyrir Val og skoraði 9 mörk en Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði 7 mörk fyrir gestina í Haukum. Valsstúlkur eru enn taplausar í deildinni eftir 17 umferðir.

Fram heldur í við Val í toppbaráttunnil eftir sannfærandi 30-18 sigur gegn KA/Þór í Framhúsinu en staðan í hálfleik var 15-7 Framstúlkum í vil.

Þá héldu ógöngur Víkings áfram í dag þegar Fylkir vann 11-42 sigur í Víkinni en staðan í hálfleik var 3-19. Sunna Jónsdóttir skoraði 14 mörk fyrir gestina í Fylki.

Úrslit dagsins:
Valur-Haukar 27-22 (12-12)

Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 9, Katrín Andrésdóttir 5, Íris Ásta Pétursdóttir 5, Ágústa Edda Björnsdóttir 4, Anna Úrslúla Guðmundsdóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 1.
Mörk Hauka: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 7, Ramune Pekarskyte 6, Eseter Óskarsdóttir 4, Erna Þráinsdóttir 2, Þórunn Friðriksdóttir 2, Nína Björk Arnfinnsdóttir 1.

Fram-KA/Þór 30-18 (15-7)
Mörk Fram: Karen Knútsdóttir 7, Guðrún Þór Hálfdánardóttir 7, Marthe Sördal 6, Hafdís Inga Hinriksdóttir 3, Hildur Þorgeirsdóttir 2, Pavla Nevarilova 2, Sigurbjörg Jóhannesdóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1.
Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 5, Arna Erlingsdóttir 5, Inga Dís Sigurðardóttir 2, Unnur Ómarsdóttir 2, Emma Sardardóttir 1, Sunneva Nilsdóttir 1, Kolbrún Einarsdóttir 1, Ásdís sigurðardóttir 1.

Víkingur-Fylkir 11-42 (3-19)
Mörk Víkings: Anna María Bjarnadóttir 5, Guðný Halldórsdóttir 2, Guðríður Ósk Jónsdóttir 1, Berglind Halldórsdóttir 1, Fríða Jónsdóttir 1, Sóley Ósk Einarsdóttir 1.
Mörk Fylkis: Sunna Jónsdóttir 14, Sunna María Einarsdóttir 9, Elína Helga 5, Arna Sif Gunnarsdóttir 5, Hildur Björnsdóttir 3, Tinna Soffía Traustadóttir 2, Hildur Harðardóttir 2, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 1, Elzbieta Kowal 1.





Fleiri fréttir

Handbolti 19. mar. 2010 13:30

Vignir fer til Hannover í sumar

Vignir Svavarsson er búinn að semja við þýska félagið Hannover-Burgdord eins og búist var ...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 22:56

N1-deild karla: Sigrar hjá Haukum, Fram og Val

Fjórir leikir fóru fram í N1-deild karla í kvöld. Akureyri vann FH og Haukar, Fram og Valu...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:56

Jónatan: Greddan var okkar megin

Jónatan Magnússon segir að Akureyringa hafi einfaldlega hungrað meira í sigur en FH-inga. ...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:40

Einar Andri: Akureyringar voru beittari

Einar Andri Einarsson kennir slakri vörn um lélegan leik FH í fyrri hálfleik gegn Akureyri...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 21:32

Rúnar: Liðið er að þróast mikið

Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, var brosmildur eftir góðan sigur á FH í kvöld. Lok...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 20:51

Umfjöllun: Akureyri drap FH-grýluna

Akureyri vann góðan 33-30 sigur á FH í N-1 deild karla í handbolta í kvöld. Akureyri var m...  

Meira

Handbolti 18. mar. 2010 11:00

Tveir nýliðar í kvennalandsliðinu gegn Bretlandi

Júlíus Jónasson, þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta, hefur valið sextán manna hóp fyr...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 22:11

N1-deild kvenna: Valur lagði Stjörnuna - Víkingur skoraði 8 mörk

Valsstúlkur eru enn ósigraðar í N1-deild kvenna eftir sterkan útisigur á Íslandsmeisturum ...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 15:00

Ná Stjörnustúlkur nú sigri gegn Val?

Þrír leikir eru í N1-deild kvenna í dag. Stórleikur kvöldsins er í Mýrinni í Garðabæ þar s...  

Meira

Handbolti 16. mar. 2010 06:00

Skemmtileg tilbreyting að berjast um titla

Það leyndi sér ekki á svipbrigðum Björgvins Hólmgeirssonar í gær að það kom honum á óvart ...  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 20:30

Alfreð: Aron á margt sameiginlegt með Lövgren

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel fóru illa að ráði sínu um helgina er liðið tapaði ge...  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 12:34

Aron og Björgvin bestir í umferðum 8-14

HSÍ hélt blaðamannafund í dag og tilkynnti um úrvalslið umferða 8-14 í N1-deild karla....  

Meira

Handbolti 15. mar. 2010 08:00

Einar Jónsson: Við erum með betra lið

Einar Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram, var að vonum svekktur eftir sex marka tap, 15-21,...  

Meira

Handbolti 14. mar. 2010 18:26

Framkonur töpuðu seinni leiknum með sex mörkum og eru úr leik

Fram er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir sex marka tap á móti Metalurg, 15-21, í sei...  

Meira

Handbolti 14. mar. 2010 16:38

Lino Cervar horfði á Framstelpurnar vinna Metalurg í gær

Lino Cervar, landsliðsþjálfari karlaliðs Króatíu, var á meðal áhorfenda þegar Framkonur un...  

Meira

Leit á Vísi

Íþróttir


Nýtt á Vísi

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni