Tónleikarnir

Fréttablađiđ Fastir pennar 03. febrúar 2010 06:00
Einar Már Jónsson
Einar Már Jónsson
Einar Már Jónsson skrifar:

Sú virðist vera bjargföst sannfæring franskra kvikmyndagagnrýnenda, að kvikmyndir eigi að fjalla um ungt fólk, helst unglinga sem góna út í loftið, segja öðru hverju einsatkvæðisorð og hlæja þess á milli innsogshlátrinum; það sé í rauninni eina verðuga verkefni kvikmyndahöfunda. Þegar þeir túlka einhverja mynd líta þeir því gjarnan svo á að yngsta persónan hljóti að vera í miðpunktinum, um hana snúist allt annað. Þannig skildu þeir „Hafið" eftir Baltasar Kormák svo að sú mynd fjallaði um ungan Íslending sem býr í París og ferð hans á heimaslóðir, annað virtist fara fyrir ofan garð og neðan hjá þeim. Ef kvikmynd snýst ekki um unglinga taka þeir henni oft fálega, ef þeir rífa hana þá ekki í tætlur.

En franskir kvikmyndaáhorfendur virðast ekki alltaf vera á sama máli, þeir álíta að fleira sé á dagskrá í veröldinni en unglingavandamálið eitt, og hefur það komið allrækilega í ljós nú í vetur. Nokkru fyrir jól var frumsýnd frönsk mynd eftir Radu Mihaileanu, sem nefndist „Tónleikarnir"; þar komu unglingar ekkert við sögu og hunsuðu gagnrýnendur hana, en þrátt fyrir það sló hún þegar í gegn svo um munaði, og hefur æ síðan verið ofarlega á listanum yfir þær myndir sem mest eru sóttar. Eftir tíu vikur var tala áhorfenda komin upp í 1,7 milljónir.

En ekki er um að villast að viðfangsefnið er gripið út úr samtímanum þótt um það sé fjallað í skáldlegum ýkjustíl. Þar segir frá rússneskum hljómsveitarstjóra sem var rekinn úr starfi á stjórnartímum Bresnéfs, því að hann neitaði að reka einleikara sem var gyðingur. Hljómsveitarstjórinn var að vísu enginn sérstakur vinur gyðinga sem slíkra, en einleikarinn, ung kona sem var fiðlusnillingur og átti að leika fiðlukonsert Tsjækofskís, var stjarna hljómsveitarinnar. Skömmu síðar var hún send í útlegð í gúlagið og lést þar. Síðan hefur hljómsveitarstjórinn orðið að láta sér lynda að vera ræstingamaður í Bolsjoj.

En einn góðan veðurdag rekst hann á fax nýskroppið út úr faxvél í skrifstofu leikhússtjórans þar sem hljómsveitinni er boðið að halda tónleika í Chatelet í París, og sér þá leik á borði: hann stelur faxinu, svarar því sjálfur og tekur boðinu í sínu nafni. Svo fer hann að safna saman tónlistarmönnum af öllu tagi sem eru í svipaðri stöðu og hann sjálfur og harla litríkur söfnuður og undirbúa tónleikaferðina til Parísar. Mörg ljón eru á veginum, það vantar peninga og því þarf að fá einn ólígarkinn til að gerast „sponsor"; svo er erfitt að fá pappíra til að komast úr landi, en um það sér rússneska mafían. Jafnframt er hljómsveitarstjórinn fyrrverandi og tilvonandi í stöðugu sambandi við leikhússtjórann í París og gerir ýmsar kröfur, m.a. vill hann fá unga, franska konu sem þegar er orðin víðfræg fyrir fiðluleik til að vera einleikari. Hún er treg en fellst þó á það að lokum.

Ferðin til Parísar er öll hin spaugilegasta, mafían ræður ríkjum á flugvellinum í Moskvu, Rússarnir drekka eins og svampar á leiðinni, og þegar þeir þurfa að tala frönsku er hún í meira lagi bjöguð, þeir gæta þess t.d. ekki að ýmis klassísk orð hafa gróflega breytt um merkingu í nútímamáli. Rússneskur ólígark birtist og heimtar að fá að útvarpa tónleikunum, reyndar hafði frönsk útvarpsstöð réttinn, en ólígarkinn hefur í hótunum og býst m.a. til að skrúfa fyrir allt rússneska gasið. Franska einleikaranum líst ekki á blikuna, en svo hefjast tónleikarnir fyrir fullu húsi í Chatelet; leikinn er fiðlukonsert Tsjækofskís, og í byrjun heyrast feilnótur hér og þar, en svo verður eins konar kraftaverk, tónleikarnir takast frábærlega vel og verða upphafið að sigurför þessara forkostulegu tónlistarmanna. Í lokin kemur í ljós að franski fiðluleikarinn var í rauninni dóttir fiðluleikarans sem lést í útlegðinni, hafði henni verið smyglað úr landi í frumbernsku. Með því að leika konsert Tsjækofskís var hún því að finna aftur sinn eigin uppruna, og taka upp þráðinn á ný.

Þegar ég sá myndina var klappað í lokin, en ég heyrði þau orð falla meðal áhorfenda, að kannske væri nýstárlegasti þátturinn lýsingin á óligörkunum. Þeir keppast um það hver geti haldið sem fjölmennastar og glæstastar veislur, og hefur kona hljómsveitarstjórans það starf að ráða fólk gegn smávægilegri borgun að sitja við borðin og fylla salarkynnin. Það er í einni slíkri hátíð sem hljómsveitarstjórinn finnur sinn „sponsor", en sú mynd sem dregin er upp af ólígörkunum í leiðinni, ruddaskap þeirra og stórmennskubrjálæði, er óborganleg. En hana ættu íslenskir kvikmyndagerðarmenn að skoða vandlega, kannske fengju þeir þar innblástur.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldiđ

Sagnfrćđingar tala um ađ stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstćđisstjórnmál af hólmi áriđ 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnađur krónu

Samkeppniseftirlitiđ birti í síđustu viku skýrslu sína um verđţróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Tónleikarnir