Opinberar yfirheyrslur

Fréttablaðið Fastir pennar 30. janúar 2010 06:00
Opinberar yfirheyrslur
Jón Kaldal skrifar:
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson ræddi við Jeremy Paxman í fréttaskýringaþættinum Newsnight í breska ríkissjónvarpinu í byrjun janúar, var ekki annað að skilja á forsetanum en Íslendingar gætu kennt Bretum sitthvað um framgang lýðræðislegra stjórnarhátta.

Óneitanlega tók forsetinn þar hraustlega til orða og er reyndar ekki alveg víst að boðskapur hans þoli nána skoðun. Hitt er hins vegar öruggt að Íslendingar geta lært ýmislegt af Bretum.

Í gær buðu þeir til dæmis upp á sérlega gagnlega kennslustund í opinni og upplýstri umræðu. Þetta var þegar breska Íraksnefndin fékk Tony Blair, fyrrverandi forsætiráðherra landsins, á sinn fund.

Hlutverk Íraksnefndarinnar er í stuttu máli að rannsaka aðdraganda innrásarinnar í Írak og þann stríðsrekstur sem eftir fylgdi. Yfirlýstur tilgangur er að draga saman lærdóm sem hægt er að hafa til hliðsjónar ef svipaðar aðstæður koma upp í framtíðinni. Nefndin var skipuð síðasta sumar og hóf opinberar yfirheyrslur í nóvember. Fjöldi einstaklinga hefur þegar komið fyrir hana, þar á meðal ýmsir embættismenn og herforingjar.
Yfirheyrslurnar eru fyrir opnum tjöldum og getur tiltekinn fjöldi almennings verið viðstaddur. Umfram allt eru þó samskipti nefndarinnar við gestina sjónvarpað beint út á netinu. Fyrir vikið gat gjörvöll heimsbyggðin, eða að minnsta kosti sá hluti hennar sem hefur netaðgang, horft á sex klukkustunda langa yfirheyrslu yfir Tony Blair í gær.

Blair var ásamt George Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í forystu þeirra ríkja sem ákváðu að ráðast inn í Írak í trássi við alþjóðalög og ályktir Sameinuðu þjóðanna. Frá stríðsbyrjun árið 2003 hafa um eitt hundrað þúsund Írakar fallið. Mannfall innrásarliðsins nálgast fimm þúsund manns.

Að vonum var eftirvæntingin yfir því sem Blair hafði að segja því mikil. Í andsvörum hans vottaði hins vegar hvorki fyrir vafa né eftirsjá.
Ísland var meðal þeirra þjóða sem studdu opinberlega innrásina í Írak. Verður sú ákvörðun þáverandi ráðamanna ævarandi blettur á þjóðinni. Enn er langt frá því að upplýst hafi verið til fulls hvernig sú óhæfa gat átt sér stað. Er það sannarlega verðugt rannsóknarefni. En það er annar kapítuli.

Opinberar yfirheyrslur bresku Íraksnefndarinnar eru áminning um hvernig rannsóknarnefnd Alþingis um hrun bankanna hefði getað hagað sínum störfum.

Rannsóknarnefndin fékk fjölda manna og kvenna í viðtöl og skýrslutöku. Hún kaus að hafa þá fundi bakvið luktar dyr. Fór þar því miður forgörðum mikilvægt tækifæri til að færa opinbera umræðu til meiri þroska.
Íraksnefndin fór fremur mjúkum höndum um Blair, nema þegar Sir Roderic Lyne var í hlutverki spyrjandans.

Fyrir okkur Íslendinga verður fróðlegt að heyra hversu hart rannsóknarnefnd Alþingis gekk að mönnum í sínum yfirheyrslum. Tækifæri til þess að komast að því mun gefast þegar hljóðupptökur frá skýrslutökum rannsóknarnefndarinnar verða aðgengilegar innan skamms á Þjóðskjalasafninu.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Opinberar yfirheyrslur