Guðlaugur sýnir starfsfólki lítilsvirðingu 8. janúar 2009 16:42 Frá fundi starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki fyrr í dag.
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki átelur ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um að leggja niður stofnunina í núverandi mynd og sameina reksturinn Sjúkrahúsinu á Akureyri. Í ályktun sem samþykkt var á starfsmannafundi fyrr í dag segir að ekkert samráð hefur verið haft við heimamenn um þessi mál. Starfsmenn stofnunnar telja að öryggi sjúklinga sé stefnt í voða. ,,Teljum við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið allt frá því að fyrst var ákveðið að sameina stofnanirnar á Sauðárkróki og Blönduósi s.l. vor verulega ámælisverð og bera vott um lítilsvirðingu gagnvart starfsfólki HS," segja starfsmennirnir í ályktun. Í ályktunin segir að vitað sé að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eigi í verulegum erfiðleikum með að ná endum saman rekstrarlega og því þykir starfsfólkinu undarlegt að fela stjórnendum þeirrar stofnunar stærra hlutverk og ábyrgð á mun flóknari stofnun. ,,Við spyrjum hvort hugmyndin sé sú að draga úr þjónustu á Sauðárkróki til þess að stoppa upp í hallan á rekstri FSA? Liggja fyrir tillögur um á hvern hátt megi ná fram áætluðum sparnaði á sameinaðri stofnun? Hver er kostnaður við sameiningu þessara átta stofnana í eina? Er þessi aðgerð þjóðhagslega hagkvæm? Sameiningin nær yfir stórt landssvæði og milli stofnana er um fjallvegi að fara. Því efumst við um að ná megi fram þeirri hagkvæmni sem boðuð er. Við teljum þvert á móti að kostnaður muni aukast og gæði þjónustu muni hraka stórlega. Öryggi sjúklinga muni einnig verða stefnt í voða," segir í ályktunni. Starfsmennirnir gagnrýna hversu fáir þingmenn kjördæmisins hafa beitt sér til að stöðva þennan gjörning. Þeir skora á Guðlaug að endurskoða þessi áform og tryggja að Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki fái að halda áfram starfi sínu. ,,Starfsfólk stofnunarinnar er tilbúið að leggja mikið á sig til að tryggja áfram þá góðu þjónustu sem hér er veitt."
Tengdar fréttir Tæpur sjö milljarða samdráttur fyrirhugaður í heilbrigðiskerfinu Heilbrigðisráðherra bíður það verkefni að draga saman í heilbrigðismálum upp á 6,7 milljarða króna á þessu ári miðað við forsendur í upphaflegu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Það sem nást á með skipulagsbreytingum, sem kynntar voru í gær, er því aðeins lítill hluti af samdrættinum í heilbrigðiskerfinu. 8. janúar 2009 12:08 Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Erlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti Sjá meira
Tæpur sjö milljarða samdráttur fyrirhugaður í heilbrigðiskerfinu Heilbrigðisráðherra bíður það verkefni að draga saman í heilbrigðismálum upp á 6,7 milljarða króna á þessu ári miðað við forsendur í upphaflegu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Það sem nást á með skipulagsbreytingum, sem kynntar voru í gær, er því aðeins lítill hluti af samdrættinum í heilbrigðiskerfinu. 8. janúar 2009 12:08
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“