Viðskipti erlent

Glaxo Smith Kline græðir 200 milljarða á svínaflensunni

Lyfjafyrirtæki munu græða milljarða bæði á bóluefna- og lyfjaframleiðslu. Búist er við að lyfjafyrirtækið Glaxo Smith Kline hagnist um sem nemur 200 milljörðum íslenskra króna vegna heimsfaraldurs svínaflensu.

Glaxo Smith Kline er stærsta lyfjaframleiðslufyrirtæki Bretlands. Búist er við að fyrirtækið geti hagnast um allt að eina billjón punda við framleiðslu og sölu lyfja gegn svínaflensunni. Þetta segja sérfræðingar á lyfjamarkaði.

Framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagðist ekki ætla að afsaka mögulegan hagnað og benti á að Glaxo Smith Kline hefði lagt allt í sölurnar og væri búið að fjárfesta fyrir hátt í fimm hundruð milljarða til bóluefnaþróunar undanfarin ár. Hann sagði flensuna hafa jákvæð áhrif á iðnaðinn.

Gert er ráð fyrir að Glaxo Smith Kline selji einn skammt af bóluefni á sex pund til vestrænna ríkja og er búist við að fyrstu skammtar komi í september. Þá er fyrirtækið í viðræðum við yfir 50 ríki um sölu lyfja og hafa þegar samþykkt að framleiða um 195 milljón skammta af bóluefni gegn svínaflensunni.

Tilfellum fer nú fjölgangi og í Bretlandi hafa þau nú tvöfaldast miðað við sama tíma í síðustu viku. Þau eru komin yfir eitt hundrað þúsund. Þetta tilkynntu heilbrigðisyfirvöld í morgun.

Fram kemur að börn 14 ára og yngri eru í yfirgnæfandi meirihluta. Þeir sem eru 65 ára og eldri eru í minnihluta. Flestir fái frekar væg einkenni en þó veikist einhverjir alvarlega.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×