Einstök björgun: Fórnađi sér svo tengdasonur gćti lifađ

Vísir Innlent 26. desember 2009 14:57
Leitađ ađ Guđmundi. Hann fannst ađ lokum í bátnum.
Leitađ ađ Guđmundi. Hann fannst ađ lokum í bátnum.

Séra Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðabæ, sagði frá ótrúlegu afreki Guðmundar Sesars Magnússonar í predikun sinni á aðfangadegi en hann lést í sjóskaða utan Fáskrúðsfjarðar þann 16. desember. Þá sökk 15 tonna plastbátur eftir að hann fékk brot á sig. Með Guðmundi um borð var tengdasonur hans, Ívar Smári Guðmundsson.

Hann komst af eftir að Guðmundur fórnaði sér fyrir hann. Frásögn Jónu var í samráði við aðstandendur Guðmundar og hófst á þessum orðum:

Örlög þrungin merkingu

„Kæri söfnuður, á þessu aðfangadagskvöldi hef ég umboð til að færa ykkur sérstaka gjöf. Eins og þjóðin veit varð sá hörmungaratburður miðvikudaginn 16. desember sl. að bát hvolfdi úti fyrir mynni Fáskrúðsfjarðar. Um borð voru tveir menn, tengdafeðgar. Sá yngri komst lífs af en sá eldri lést. Eiginmaður minn, sr. Bjarni Karlsson þjónar þessari fjölskyldu í sorg þeirra og veið fengum leyfi ástvinanna til að greina frá þeirri lærdómsríku atburðarás sem tengist slysinu, lífbjörg unga mannsins og lífi og dauða tengdaföðurins Guðmundar Sesars Magnússonar. Stundum er lífið sjálft stærra í sniðum en nokkurn hefði órað fyrir og mannleg örlög svo þrungin merkingu að maður gerir rétt í því að staldra við. Hér er slík saga."

Jóna lýsti því þegar Guðmundur Sesar auk Ívari Smára í félagi við mág Guðmundar, sem var ekki með í för, stofnuðu útgerð. Bátinn höfðu þeir keypt nýlega og loks var að því komið að sækja hann til Vopnafjarðar og sigla honum heim til Hafnarfjarðar þar sem fjölskyldan býr.

Hvolfdi í ólgandi hafið

„Raunar er það þekkt að úti fyrir Austfjörðum mætast oft miklir hafstraumar og stundum hafa jafnvel stærri skip lent í vanda á þessu svæði austan við Skrúð sem sjómenn nefna Brökur. Þá leita sterkir straumar upp á yfirborðið svo að hafið ólgar og brestur allt í kring.

Þeir höfðu haft orð á því hvor við annan hve vel báturinn færi í hafi og hve stöðugur hann væri að sigla honum.

Fyrirvaralaust kom stór alda bakborðsmegin á bátinn svo að Sesari og Ívari brá mjög við óvænt höggið uns önnur margfalt stærri reið að stjórnborðsmegin án minnsta fyrirvara og færði bátinn umsvifalaust á hvolf ofan í ólgandi hafið," lýsir Jóna hinu hræðilega slysi.

Svo segir hún frá því að Guðmundur Sesar hafi verið lífsreyndur maður en sjálfur hafði hann misst föður sinn tveggja ára gamall. Þá drukknaði hann til sjós.

Hlakkaði til fyrstu jólanna með fjölskyldunni


Svo segir í predikun Jónu:

„Er bátnum hvolfdi fossaði sjór inn í stýrishúsið og náðu þeir Sesar og Ívar að komast niður í vélarrúmið sem nú snéri upp og finna þar súrefni til að anda að sér á meðan þeir gætu náð áttum í ísköldum sjó og þreifandi myrkri.

Þeir fundu hvor annan og ræddu saman í þögninni sem skollið hafði á um leið og vélin drap á sér þar sem báturinn marraði í kafi á ókyrrum haffletinum.

Ítrekað skiptust þeir á að leita útgöngu með því að kafa niður í stýrishúsið og leita útleiðar í svarta myrkri og olíumenguðum sjó en allt kom fyrir ekki. Er vatnsborðið hækkaði og náði þeim undir höku héldu þeir uppgefnir hvor í annan og báðu saman Faðirvor.

Sesar hafði orð á því að nú væri stund þeirra komin og þeir skyldu þá reyna að deyja eins og menn. Og enn var beðin bæn frelsarans, Faðir vor. Þá segir Ívar við tengdaföður sinn:

„Og ég sem hlakkaði til að eiga fyrstu jólin með syni mínum og konunni."

„Þá skaltu lifa!"

Það var þá sem það gerðist.

„Þar sem þeir héldu hvor í annars hægri hönd með olíubrákað sjóvatnið undir höku en með þeirri vinstri héldu þeir við hnakkann hvor á öðrum.

„Og ég sem hlakkaði til að eiga fyrstu jólin með syni mínum og konunni." mælti Ívar.

Þá horfði Sesar inn í augu hans í myrkrinu og sagði:

„Þá skaltu líka lifa! Þú getur komist niður gatið, inn í stýrishúsið og út!" Við svo búið setti hann hönd ofan á hvirfil tengdasonar síns og ýtti honum af afli niður í átt að útgönguleiðinni."

Slysið varð rétt rúmlega sjö um morguninn og úti var niðamyrkur. Öll ljós höfðu dáið í bátnum þegar hann hvolfdi.



Guđmundur Sesar fórnađi sér svo tengdasonur hans gćti haldiđ jól međ fjölskyldu sinni.
Guđmundur Sesar fórnađi sér svo tengdasonur hans gćti haldiđ jól međ fjölskyldu sinni.

„Er Ívar kom svamlandi í 4°C köldum sjónum inn í stýrishúsið þá var þar allt baðað hvítri birtu svo að ratljóst var og hann sá gluggann með lokunni stjórnborðsmegin. Á þeirri stundu fann hann hvorki fyrir kulda né súrefnisskorti, hugsun hans var einbeitt og skýr er hann tók í lokuna og opnaði gluggann sem rétt var nógu breiður svo að hann gæti rennt sér út um hann klæddur í peysu og föðurland.

Er Ívar skaut höfðinu upp úr sjónum og dró að sér ferskt loftið fann hann mátt sinn aukast svo að hann hóf að klifra upp á kjöl bátsins og þótt aldan slæi hann ítrekað niður. Komst hann loks upp og gat skorðað sig. Heyrði hann þá nafn sitt hrópað innan úr bátnum og gat svarað og hvatt Sesar til að reyna sömu útgöngu."

Himnasending?

Þar sem Ívar beið uppi á kili bátsins fáklæddur og blautur í vetrarmyrkrinu gerði hann sér grein fyrir því að staða hans var síst orðin betri því hér myndi hann krókna úr kulda.

„Þá hrópaði hann á Guð og spurði hann hvað hann meinti með þessu, og fyrir hvað hann væri þá að refsa sér með því að leyfa honum að komast þetta langt en deyja svo?! Er hann þá skimaði niður að glugganum til að sjá hvort tengdafaðir hans kæmi svo hann gæti tekið í hönd hans kom eitthvað skyndilega á mikill ferð út um gluggann upp úr sjónum og rakleitt í fangið á Ívari svo að honum brá við og hugðist varpa því frá sér uns hann gerði sér grein fyrir því að hann hélt á björgunargalla, sterkri og skjólgóðri flík sem nota skal við aðstæður sem þessar.

Veit hann engar hefðbundnar skýringar á þeirri sendingu," segir í predikun Jónu Hrannar.

Tengdasonurinn bjargaðist

Nú tók við atburðarrás þar sem reyndi á lærð handtök er hann klæddi sig í gallann, losaði björgunarbátinn og komst þar um borð til að senda frá sér merki með blysum og neyðarbauju. Frá þeirri stundu er bátnum hvolfdi til þess tíma er kviknaði á neyðarbaujunni liðu 40 mínútur. Alls liðu svo þrír og hálfur tími uns hjálp barst og Ívari var bjargað um borð í fiskibát. Lík Sesars fannst í vélarrúmi bátsins er hann var dreginn til hafnar í Fáskrúðsfirði.

Brotnir geislabaugar

Að lokum segir í predikun Jónu Hrannar:

„Ef einhver fjölskylda á Íslandi veit og skynjar nú um þessi jól hve dýrmæt fórnargjöf lífið er, þá er það fjölskylda Guðmundar Sesars Magnússonar.
Í dýpsta eðli sínu er lífið fórnargjöf. Þeim sannleika lýsa jólin. Jólaguðspjallið, sagan um sendingu Guðssonarins inn í heiminn, segir okkur einmitt það.

Lífið sem við eigum hér á jörð er heilagt og dýrmætt vegna þeirrar fórnar sem færð hefur verið og besta leiðin til þess að lifa er sú að vera þakklátur.

Reynsla þessarar fjölskyldu er einstök og sagan er merk en fjölskyldu Sesars er umhugað um að enginn haldi að hann hafi verið einhver dýrlingur.

„Við höfum nú frekar brotna geislabauga prestur minn." Sagði Oddrún við mig er við ræddum saman um efni þessarar ræðu.

Já, jólin eru handa okkur öllum sem höfum brotna geislabauga. Gæfa Sesars var sú að hann átti hlutdeild í hugarfari Krists, lífið hafði leitt hann að uppsprettu sinni, fórninni. Saman fluttu þeir orð frelsarans á ögurstundu og fólu sig á vald Guði;

„…verði þinni vilji…þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu." Og er Ívar lýsti yfir lífsvilja sínum fékk frelsarinn enn að eiga orðið er Sesar mælti fram vilja Guðs og sendi hann að svo mæltu út í lífið þar sem barnið hans beið.

Í kvöld bíður þín nýfætt barn. Þín er beðið. Langar þig að lifa í þágu þess? Þá áttu gleðileg jól."

Hægt er að lesa predikun Jónu Hrannar í heild sinni hér.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigrađi í Evróvisjón

Ţađ var lagiđ Mundu eftir mér sem sigrađi í Evróvisjón í kvöld. Ţađ var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuđu hćttulegt rauđvín

Nokkrir ađdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmćltu ákvörđun vínbúđarinnar um ađ leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambiđ á Ţórshöfn međ mikla höfuđáverka

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á gjörgćsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvađa lög sprengjumađurinn braut

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist viđ hríđarveđri seint í kvöld

Ţađ hvessir af suđri seint í köld og hlýnar heldur. Á hćstu fjallvegum um landiđ vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánćgju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir ađ Rannveig Ásgeirsdóttir myndađi meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu fékk tilkynningu um ađ útigangsmenn hefđi veriđ ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ćtlađi ađ slökkva á brunabođanum en rćsti innbrotsbođann í stađinn

Hann var óheppinn iđnađarmađurinn sem var ađ störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmađur Íslands bjargađi dóttur sinni

Rauđi kross Íslands hefur valiđ Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráđi...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttrćđisaldri og misţyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin ţyngd sjúklinga hćkkar kostnađ vegna lyfja

Aukin ţyngd sjúklinga hefur hćkkađ kostnađ Landspítalans vegna lyfja síđustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmađur stunginn og svo fćrđur í fangageymslu

Karlmađur var stunginn í nótt í Hafnarfirđi og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörđun um gćsluvarđhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörđun um ţađ síđar í dag hvort ađ krafist verđi gćsluvarđahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verđur haldinn um allt land í dag. Markmiđ dagsins er ađ kynna neyđarnúmeriđ ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Fćrđ og ađstćđur: Hálka víđa á Suđurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiđi og Ţrengslum en snjóţekja á Lyngdalsheiđi, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillađir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafđi afskipti af fjórum unglingum viđ Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gćrk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíđa Alţingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmađur segir í minnisblađi til borgarráđs ađ borgin verđi ađ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast ađ verđmćtar minjar endi í brćđslu

Safnaráđ tók skeiđar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugđist fara međ góssiđ ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja ađ nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfrćđingur á sviđi fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viđtali viđ Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Einstök björgun: Fórnađi sér svo tengdasonur gćti lifađ