Skoðun

Einn heilbrigður banki á Íslandi

Margeir Pétursson skrifar um bankarekstur

Í Viðskiptablaðinu 17. desember segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra: „Nú eru starfandi á Íslandi þrír fullfjármagnaðir og heilbrigðir bankar sem hafa fyrst og fremst það hlutverk að þjónusta íslensk heimili og atvinnulíf.“ Þetta birtist undir fyrirsögninni „Þrír heilbrigðir bankar“. Þarna á fjármálaráðherra við afsprengi föllnu bankanna, sem eru NBI hf. (Nýi Landsbankinn), áður Landsbanki Íslands, Íslandsbanki, áður Nýi Glitnir, þar áður Glitnir, þar áður Íslandsbanki og Arion Banki, áður Nýi Kaupþing Banki, þar áður Kaupþing Banki, þar áður KB Banki, þar áður Kaupþing Búnaðarbanki, þar áður Búnaðarbankinn.

Fjármálaráðherra á hins vegar að vita mætavel að á Íslandi er aðeins starfandi einn heilbrigður viðskiptabanki, MP Banki hf., sem hefur staðið við allar sínar skuldbindingar bæði innanlands og erlendis. Mér sem stofnanda og stjórnarformanni MP Banka sárnar að ráðherra hafi sleppt því að nefna hann, en hampa afsprengjum föllnu bankanna þar sem ríkið á reyndar mikilla hagsmuna að gæta. Lái mér það hver sem vill að sárna. Vonandi er þetta ekki fyrirheit um að ríkið muni brjóta samkeppnislög til hagsbóta fyrir þá banka þar sem það á beinna hagsmuna að gæta sem hluthafi og óbeinna sem kröfuhafi.

Spunameistarar ennþá við stýrið?Sú fullyrðing að nýju bankarnir þrír séu „heilbrigðir“ virðist byggjast á einhverskonar óskhyggju ráðherrans. Tilvist þeirra byggist á neyðarlögunum þar sem farið var á snið við meginreglur alþjóðlegs gjaldþrotaréttar og innlendar eigur föllnu bankanna voru settar yfir á nýja kennitölu. Þegar eru farin af stað dómsmál gegn íslenska ríkinu og bönkum þess og má búast við tilraunum til kyrrsetningu á eignum um ókomin ár sem m.a. Seðlabanki Íslands hefur varað við. Þá samræmist eignarhald tveggja af þremur nýju bankanna ekki lögum um fjármálafyrirtæki þar sem eigendur þeirra eru þrotabú.

Mér er ekki kunnugt um nokkurt land þar sem þrotabúum er heimilt að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki. Það mál verður væntanlega einnig leyst með kennitöluskiptum. Ímyndarsérfræðingar nýju bankanna túlka þetta sem eignarhald erlendra aðila og stuðningsyfirlýsingu þeirra við bankana, þótt „eigendurnir“ virðist að stórum hluta hrægamma- og vogunarsjóðir í leit að skjótfengnum gróða. Það hlýtur svo að vera að lagaflækju- og ímyndarmenn föllnu bankanna hafi haldið stöðum sínum. Það er mjög slæmt ef sá stjórnmálamaður er farinn að trúa þeim, sem áður var í forystu efasemdar­manna. Þá er Bleik brugðið. Ógagnsæi við endurreisn?Nú ganga fjöllunum hærra þær sögusagnir að fjármálaráðherra hyggist veita fjárfestingarbankanum Saga Capital hf., sem lét fallerast í ástarbréfaleik föllnu bankanna, mikið hlutverk í endurreisn sparisjóðakerfisins. Eitt fyrsta verk ráðherrans í fjármálaráðuneytinu var að veita þessu fyrirtæki 19 milljarða lán á 2% vöxtum til að draga það að landi, sem fyrirtækið eignfærði síðan sem 6 milljarða eign með fáheyrðum bókhaldsæfingum. Í fréttum RÚV þann 15. desember lagði ráðherrann sérstaka blessun sína yfir yfirstandandi kennitöluskipti fyrirtækisins. Sökudólgarnir í Enron-hneykslinu mikla hljóta nú að gráta það á bakvið lás og slá að hafa ekki hugsað upp slíkt snjallræði. Þá væri hlutabréfaverð Enron væntanlega ennþá í hæstu hæðum. Nú þarf ráðherra að afneita þessum sögusögnum algerlega, þannig að minni vafi leiki á um gagnsæja endurreisn íslensks fjármálakerfis.

Við hjá MP Banka höfum ekki þegið stuðning frá ríkinu eða kostað skattgreiðendur neitt. Það hafa viðskiptavinir kunnað vel að meta. Það eina sem við förum fram á er að leikreglur og samkeppnislög verði höfð í heiðri og við njótum sannmælis.

Höfundur er stofnandi og stjórnarformaður MP Banka hf.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×