Huldumaður greiddi kokkakertin 5. desember 2009 05:15 Úlfar og Tómas dreifa gjöfum til barna í næstu viku. „
Það var hringt í okkur frá Sólheimum í Grímsnesi og spurt hvert ætti að senda kertin. Það var bara einhver sem greiddi,“ segir matreiðslumaðurinn Úlfar Eysteinsson. Úlfar og félagi hans, hamborgarakóngurinn Tómas Tómasson, ætla að dreifa kertum og spilum til barna í næstu viku. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum þá biðluðu kokkarnir til Seðlabanka Íslands um styrk fyrir kertum frá Sólheimum. Í kjölfar fréttarinnar hafði huldumaður samband við Sólheima og greiddi kertin og Úlfar segir engu máli skipta hver var þar að verki. „Það kom okkur mjög á óvart. Við þurfum ekki að ónáða neinn með það,“ segir hann. „Við erum ekkert að kafa í þetta. Það eru einhverjir að mótmæla á jákvæðan hátt eins og við.“ Eins og kunnugt er þá eru Úlfar og Tómas að mótmæla háum stýrivöxtum Seðlabankans, en þeir ætla ekki að raka sig fyrr en vextirnir lækka um 1,5 prósent. Kokkarnir dreifa huldukertunum og spilunum, sem Icelandair gaf, í leikskóla, barnaspítala Hringsins og víðar í næstu viku. Úlfar segir að allt sé að smella saman og búið sé að redda því sem þarf að redda. „Hestvagninn kemur úr Grindavík og hesturinn og ökumaðurinn úr Hafnarfirði. Þetta er allt að bresta á,“ segir hann. En hvað heitir hesturinn? „Hann er bleikur og við köllum hann það. Það var eins nálægt og við komumst að jólasveinalitnum.“ - afb
Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Sjá meira