Legurýmum á hjarta- og lyflækningadeildum fækkað um 20 Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. desember 2009 19:38 Legurýmum verður fækkað á Landspítala. Mynd/ GVA.
Legurýmum var fækkað um samtals 20 á hjartadeildum og lyflækningadeild Landspítala í gær. Starfsmönnum lyflækningasviðs var tilkynnt um þetta með sólarhringsfyrirvara. Þetta kemur fram á vef Sjúkraliðafélags Íslands. Í stað legurýma verða tekin upp dagdeildarrými. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir að verði fjöldi sjúklinga sem þarf að leggja inn umfram þau legurými sem á að halda eftir þurfi aðrar deildir að bæta þeim sjúklingum við sig. „Þeir sem þurfa að leggjast inn þurfa þá bara að fara yfir á aðrar deildar," segir Kristín í samtali við Vísi. Kristín segir að í þeim skýringapósti sem var sendur hafi jafnframt verið lögð áhersla á að öllu ferli í meðferð sjúklinga yrði hraðað. „Það hefur að okkar mati verið mjög mikil aukning á því að sjúklingar séu látnir fara eins fljótt og hægt er en þarna er verið að leggja ennþá meiri áherslu á það," segir Kristín, sem telur að útlitið framundan í heilbrigðismálum sé ekki bjart.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira