Innlent

Ný flugstöð byggð í borginni

MYND/Pjetur

Fulltrúar samgöngu­yfirvalda hafa viðrað hugmyndir við borgaryfirvöld og lífeyrissjóðina um að byggð verði ný flugstöð á Reykjavíkurflugvelli, á svæði Flugfélags Íslands. Fallið verði frá hugmyndum um stóra samgöngumiðstöð. Umferðar­miðstöðin, eða BSÍ, yrði áfram á sínum stað.

Nýbyggingin yrði 1.500 fermetrar að stærð og myndi kosta rúman milljarð. Hún yrði reist rétt norðan við núverandi flugstöð, sem yrði að lokum rifin.

Áður stóð til að reisa sex þúsund fermetra samgöngumiðstöð, sem hefði verið stækkanleg í allt að tíu þúsund fermetra, norðan af Loftleiðahótelinu. Sú lóð hefur síðan verið minnkuð, og Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, bendir á að þrenging lóðarinnar og nálægðin við Háskólann í Reykjavík, geti hugsanlega gert aðkomu bílaumferðar að flugstöð við Loftleiðir lakari.

„Mér líst persónulega ekkert illa á þessa niðurstöðu, ef hún yrði ofan á," segir Júlíus „Mér finnst að ráðherra samgöngumála megi vel skoða þetta í ljósi breyttra aðstæðna, að byggja litla flugstöð í stað þeirrar stóru samgöngu­miðstöðvar sem átti að rísa."

Ljóst sé að núverandi aðstaða innanlandsflugsins sé ekki viðunandi. Júlíus færi því vel yfir þetta mál, komi formleg tillaga frá ríkinu.

Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að hagsmunaaðilar hafi rætt það við ríkið að hafa flugstöðina minni, enda hafi orðið samdráttur í fluginu. Enn hafi ekkert verið ákveðið og málið sé statt hjá Reykjavíkurborg.

„Ég er opinn fyrir hverju sem er og við erum til í að byggja samgöngumiðstöð um leið og við fáum leyfi til," segir hann. Enn standi til að reisa samgöngumiðstöð, en ekki bara flugstöð. Spurður í hvaða húsi aðstaðan fyrir rútur eigi að vera, segir hann það óleyst mál sem fari eftir því hvaða leyfi fáist frá borginni og á hvorri lóðinni verði byggt. „Þetta verður alltaf samgöngumiðstöð, en misjafnt hvernig hún verður útfærð," segir hann. Vonandi fáist niðurstaða sem fyrst.

Arnar Sigmundsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, segir að viðskiptamódel fyrir samgöngumiðstöðina sé tilbúið.

„Við kæmum fyrst að þessu í gegnum fjármögnunina. Það er gert ráð fyrir að endurgreiðsla yrði í formi húsaleigu og gjaldtöku þeirra sem umferð eiga um stöðina. Þannig yrði kostnaðurinn endurgreiddur á tuttugu til þrjátíu árum," segir Arnar.

Borgarstjórnarflokkarnir, utan F-lista, sameinuðust í fyrra um tillögu úr hugmyndasamkeppni, sem gerði ráð fyrir því að flugvöllurinn hyrfi úr Vatnsmýrinni.

Spurður hvort um stefnubreytingu sé að ræða hjá borginni, segir Júlíus að þetta tvennt hangi ekki endilega saman. Byggingin yrði létt og megi fjarlægja auðveldlega.- kóþ





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×