Hreppur eða borg

Fréttablaðið Fastir pennar 23. október 2009 06:00
Hreppur eða borg
Pawel Bartoszek skrifar:

Þrátt fyrir hina miklu bílaeign þjóðarinnar eru bílar almennt ekki sérlega vel liðinn hlutur. Flestum er raunar afar illa við alla aðra bíla en þeirra eiginn. Hinir bílarnir eru of margir, keyra og hratt, leggja ólöglega, virða ekki stöðvunarskyldur og gefa ekki stefnuljós. Annarra manna bílar eru einhver versti gestur og nágranni sem menn geta óskað sér. Ef „íbúar í nágrenninu" fengju einhverju ráðið yrðu allar götur annað hvort botnlangar eða einsstefnugötur, eða jafnvel hvort tveggja. Sem væri raunar dálítið fyndið.

Utan eigin hverfis óska þess hins vegar flestir að umferðin sé "greið" og gangi "hratt og örugglega" fyrir sig. Ef vegir fyllast þá skulu þeir breikkaðir, ef bílastæði fyllast þá skal þeim fjölgað, ef gangandi vegfarendur þvælast fyrir þá skulu þeir færðir í göng eða brú. Í versta falli má láta þá bíða á í þrjár mínútur á fasaskiptum gangbrautarljósum á Miklubrautinni.







Bílastæða„vandinn“

Það þarf að hætta að líta á bílastæði sem mannréttindi og fara líta á þau sem mannvirki úr malbiki og steypu sem kostar að byggja og halda við. Eins og staðan er nú er kveðið á um lágmarksfjölda bílastæða við íbúðir, stofnanir og fyrirtæki í byggingareglugerðum.

(Raunar geta menn fengið undanþágu frá þessum reglum en þurfa þá að greiða sekt!) Allt þetta lögbundna framboð af ókeypis eða mjög bílastæðarými jafngildir heilmikillri niðurgreiðslu til þeirra sem ferðast á einkabíl. Það er almennt talið að undir hvern bíl þurfi fjögur bílastæði. Flestir eiga hins vegar í mesta lagi eitt þessara stæða. Einhver annar borgar fyrir hin þrjú.

Allir svokallaðir bílastæðavandar höfuðborgarsvæðisins felast í raun í því að verið er að gefa eða niðurgreiða vinsælt landrými á háannatímum. Segjum að ég mundi ákveða að gefa öllum sem vildu súpu í hádeginu á fimmtudögum.

Fyrsta fimmtudaginn mundu nokkrir vinir mínir mæta og súpan mundi næstum því klárast. Næsta fimmtudag væri hróður matargerðar minnar búinn að berast til nokkurra vina í vibót súpan mundi klárast, og hugsanlega mundi ekki duga handa öllum.

Nú gæti ég fengið mér stærri pott og fengið aðstoð í eldhúsinu en ég er viss um að innan nokkurra vikna væru farnar að myndast súpubiðraðir heima hjá mér. Svo væri fólk farið að kvarta undan því að súpan væri ekki eins góð og síðast og allt of margir væru farnir að mæta í súpu hjá Pawel, jafnvel fólk sem enginn kannaðist við.

Fjölgun bílastæða mun ekki leysa bílastæðavanda fremur en súpuvandi minn verður leystur til langframa með stærri pottum og fleiri skálum. Ókeypis gæði búa til biðraðir. Það er lögmál.







Sérstaða Reykjavíkur

Í dreifðri borg eins og Reykjavík er erfitt að halda uppi góðum almennings- og hjólreiðasamgöngum. Fyrir vikið kjósa flestir einkabílinn og skipulagið fer fyrst og fremst að miðast við bílaumferð. Þar sem bílar eru plássfrek fyrirbæri dreifist byggðin en frekar. Þetta er hringrás sem brjótast þarf út úr.

Hvar liggja sóknarfærin í skipulagsmálum Reykjavíkur? Sérstaða Reykjavíkurborgar felst í þéttu miðsvæði með raunverulegum borgarbrag. Það getur Reykjavík boðið en önnur sveitarfélög ekki. Þessa sérstöðu ætti Reykjavík að leggja megináherslu á; byggja þétt, byggja miðsvæðis og í Vatnsmýrinni og eftirláta nágrannasveitarfélögum að keppa um hylli þeirra sem vilja búa í einbýlishúsum sem þeir sjálfir hafa byggt. Jafnvel þótt Reykjavík kysi að vaxa einungis inn á við á næstu árum yrðu engu að síður nægir valkostir í boði fyrir þá sem kjósa að búa dreift, bæði í núverandi hverfum Reykjavíkur sem og í væntanlegum og hálfkláruðum hverfum nágrannasveitarfélaga. Kjósi Reykjavík hins vegar frekari útþenslu mun kostum þeirra sem vilja búa þétt ekki fjölga.

Dreifð byggð og offramboð ókeypis og ódýrra bílastæða eru stærstu áhrifaþættirnir í skipulagsvanda Reykjavíkurborgar. Liggi alvara að baki þeim hugmyndum að gera Reykjavík að betri og umhverfisvænni borg eru þetta þeir tveir þættir sem næsta Aðalskipulag Reykjavíkurborgar þarf að taka á. Annað mun fylgja í kjölfarið: Góðir hjólastígar og öflugar almenningssamgöngur eru oft afleiðingar þess að fólk hjólar eða tekur strætó, ekki síður en ástæður.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hreppur eða borg