SUS hafnar skuldsetningu framtíðarkynslóða 21. október 2009 16:18
Samband ungra sjálfstæðismanna átelur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að steypa íslenskri þjóð í skuldaánauð með því að samþykkja, það sem getur ekki kallast annað en fyrirvaralaus ríkisábyrgð á Icesave samningunum samkvæmt ályktun sem þeir sendu fjölmiðlum. Þar segir að ungir sjálfstæðismenn krefjist þess að Alþingi standi í lappirnar og fallist ekki á ný lög um rangláta og fyrirvaralausa ríkisábyrgð. Vilji Bretar og Hollendingar fá úr því skorið hvort Íslendingum beri að greiða þessa skuld, geta þeir leitað til dómstóla. Orðrétt segir svo: Ungir sjálfstæðismenn hafa áður bent á að ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur þátt í að kúga Ísland til óhagstæðrar niðurstöðu í þessu máli, þá sé það skylda stjórnvalda að vekja athygli á því á alþjóðlegum vettvangi. Slíkur fantaskapur er misnotkun á alþjóðlegum stofnunum. Verulegur vafi er því á því hvort íslenska ríkinu beri lagaleg skylda til að greiða þennan reikning - enda þyrfti Alþingi ekki að samþykkja sérstaka ríkisábyrgð á samningunum ef skyldan væri skýlaus. Það að hverfa frá þeim fyrirvörum sem settir voru við samningana kallar aðeins á að ungt fólk verði alla sína ævi að greiða fyrir afglöp ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Slík niðurstaða er ekki boðleg landi og þjóð. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur algjörlega mistekist að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri á erlendum vettvangi - þrátt fyrir að hafa setið að völdum í tæpa níu mánuði og ítrekað verið bent á nauðsyn þess að halda uppi slíkri málsvörn. Minnimáttarkennd og undirlægjuháttur ríkisstjórnarinnar gagnvart erlendum aðilum í þessu máli er staðreynd.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira