Hundrað manns gætu misst vinnuna á Suðurnesjum Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 16. október 2009 18:35
Hundrað manns munu missa vinnuna við byggingu gagnavers á Suðurnesjum ef ekki tekst að ljúka samningum við ríkið um meðal annars skattamál fyrir næstu mánaðarmót. Framkvæmdir við fimmtíu milljarða króna rafrænt gagnaver Verne Global á Ásbrú, gamla varnarsvæðisins í Keflavík hafa verið í fullum gangi síðan í maí á þessu ári. Í júní störfuðu t.a.m. 120 menn frá íslenskum Aðalverktökum við byggingu versins. Nú hefur hinsvegar verið dregið úr framkvæmdum og er verkið í hægagangi. Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður Verne Holdings, sagði í samtali við fréttastofu að fyrirtækið hefði neyðst til að draga saman seglin þar sem það hefur dregist að ljúka við gerð fjárfestingarsamnings við stjórnvöld. Vonir stóðu til að hægt yrði að ljúka honum í sumar. Í honum er skatta- og starfsumhverfi fyrirtækisins skilgreint og meðan ekki er kominn botn í það mál hafi verið farin sú leið að draga úr fjárstreyminu í verkið tímabundið. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun vera gert ráð fyrir því að um 20 manns vinni að byggingu versins, eða um 100 færri en verið hefur. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að lokið hafi verið við gerð fjárfestingarsamningsins á síðustu dögum en enn sé ekki kominn botn í hvernig skattaleg meðferð viðskiptavina fyrirtækisins verði háttað.
Mest lesið Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Sjá meira