Höskuldur: Fórum ekki fýluferð til Noregs 10. október 2009 10:43 Höskuldur Þórhallsson.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sig og formann flokksins ekki hafa farið í fýluferð til Noregs til að liðka um fyrir risaláni til Íslands. Þvert á móti hafi þeir greint mikinn vilja meðal norskra þingmanna. Höskuldur segir að hafi Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, beðið forsætisráðherra Noregs um að segja ekki stæði til að veita Íslendingum slíkt lán sé um skemmdarverk að ræða. Íslendingar fá ekki lán frá Noregi umfram það sem nú þegar hefur verið samið um. Þetta kemur fram í norska blaðinu ABC Nyheter. Þar segir ennfremur að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi sent Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, bréf á mánudag og spurt út í fullyrðingar forystumanna Framsóknarflokksins um að Íslendingum standi til boða allt að 2000 milljarða króna risalán frá Noregi. Slíkt mun ekki vera í boði samkvæmt svari norska forsætisráðherrans. „Við heyrðum að Jóhanna hefði sent Stoltenberg tölvupóst um að þessi ferð okkar væri að valda henni vandræðum á Íslandi. Hún bað hann þess vegna um að segja þetta. Ef það er rétt þá er það ekkert annað en skemmdarverk gagnvart íslensku þjóðinni," segir Höskuldur. Stoltenberg er formaður Verkamannaflokksins en flokkurinn er systurflokkur Samfylkingarinnar. Þingmaðurinn segir að sér virðist sem að Samfylkingin vilja ljúka við aðgerðaáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og þannig stórskaða hagsmuni þjóðarinnar. Samfylkingin horfi fram hjá því að sjóðurinn sé að misbeita valdi sínu í þágu Breta og Hollendinga. Höskuldur segir að Noregsferðin hafi verið afar góð og að hann Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hafi rætt við fjölda þingmanna úr öllum flokkum. Allir hafi þeir verið jákvæðir nema þingmenn Verkamannaflokksins. „Ég er þeirrar skoðunar eftir þessa ferð að ég tel miklar líkur á því Íslendingar fái lán frá Norðmönnum komi formleg beiðni frá Íslandi."
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Hafnar kreddum um verðbólguna Innlent Fleiri fréttir Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Sjá meira