Lífið

Dorrit sat kvöldverð með Naomi og Nicole Kidman

Dorrit var ásamt góðvinkonu sinni, Mörthu Stewart, í glæsilegu kvöldverðarboði í New York fyrir skömmu. Meðal annarra gesta voru þær Nicole Kidman, Jessica Alba og Naomi Campbell.
Fréttablaðið/ Egill BJarnason
Dorrit var ásamt góðvinkonu sinni, Mörthu Stewart, í glæsilegu kvöldverðarboði í New York fyrir skömmu. Meðal annarra gesta voru þær Nicole Kidman, Jessica Alba og Naomi Campbell. Fréttablaðið/ Egill BJarnason

Forsetafrúin Dorrit Moussaeiff sótti glæsilegan kvöldverð í New York þegar forsetahjónin voru þar í lok september. Varla varð þverfótað fyrir stórstjörnum í teitinu.

Bandaríska stórblaðið New Yorker fjallar ítarlega um þessa veislu í grein sem birtist í gær og hefur þar eftir Dorrit að eiginkonur valdamanna hittist við allskonar aðstæður. „Við sjáumst við brúðkaup og jarðafarir.“ En meðal þeirra sem voru á staðnum var Sarah Brown, eiginkona Gordons Brown. Og spurning hvort Dorrit hafi lagt inn gott orð fyrir Icesave-málið.

Viðburðurinn nefnist Important Dinner for Women eða Mikilvæg kvöldstund fyrir konur og hefur verið haldinn fjórum sinnum. Málsmetandi konur hittast þá og ræða um stöðu kvenna í heiminum og hvernig þær geti lagt sitt af mörkum til að bæta hana. Aðalmálið í þessari veislu var að gera barnsfæðingar öruggari í þróunarlöndunum en gestgjafar að þessu sinni voru þær Wendi Murdoch, eiginkona fjölmiðlamógulsins Ruperts Murdoch, Nooyi, forstjóri PepsiCo og drottning Rania frá Jórdaníu.

New Yorker virðist hafa haft blaðamann á sínum snærum sem lýsir því sem fyrir augu ber með nokkuð skemmtilegum hætti. Veislan var haldin á hinum glæsilega veitingastað Ciapriani við 42. stræti en nokkrir heimsfrægir karlar gengu um sem þjónar. Má nefna að írski rokksöngvarinn Bono sá meðal annars um súpuna og fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch skenkti í glös kvennanna. Meðal gesta voru leikkonurnar Nicole Kidman og Jessica Alba, ofurfyrirsæturnar Iman og Naomi Campbell, athafnakonan og vinkona Dorritar, Martha Stewart, og kryddpían Geri Halliwell auk þess sem kántrýsöngkonan Shania Twain og leikkonan Naomi Watts mættu á svæðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×