„Það er frekar fúlt að það sé hægt að nota nafn manns og mynd svona auðveldlega – og í rauninni ferðast um Netið undir mínu nafni. Það er mjög óþægilegt," segir alheimsfegurðardrottningin og lögfræðingurinn Unnur Birna Vilhjálmsdóttir.
Netþrjótur opnaði Facebook-síðu undir hennar nafni í sumar og hefur síðan verið mjög duglegur að sanka að sér vinum. Svo virðist sem fólk átti sig ekki á að um netþrjót sé að ræða, jafnvel þótt eftirfarandi „status"-uppfærsla hafi birst í byrjun september: „Við munum vera hamingjusamur, ekki misrétti:D"
Unnur hefur reynt að tilkynna þrjótinn til forsvarsmanna Facebook með því að smella á „report"-takkann, en án árangurs. „Enda bjóst ég ekki við viðbrögðum. Maður er hálfvarnarlaus," segir hún.
„Ég hef ekki látið þetta hafa áhrif á mig hingað til, en þegar maður heyrir að viðkomandi sé að bæta hálfri þjóðinni við sem vinum, þá er þetta orðið hálfkjánalegt," segir Unnur. „Ég verð bara að treysta á það að þeir sem þekkja mig raunverulega séu vinir mínir á réttri síðu."
Netþrjóturinn virðist ekki gera sér grein fyrir því að sú sem hann þykist vera er í mastersnámi í lögfræði. Heimatökin eru því hæg fyrir Unni vilji hún fara lengra með málið. „Þetta gæti klárlega orðið mál," segir hún, en bætir við að það gæti reynst erfitt að bregðast við málum á jafn stóru vefsvæði og Facebook er.
„Mér datt helst í hug að henda nafninu mínu út af Facebook og opna síðu undir dulnefni," segir Unnur í léttum dúr. - afb
Söngkonan Pink, 30 ára, eða Alecia Moore, valdi rauðvín í verslun í Kaliforníu í gærdag....
Leikarinn Bradley Cooper, 35 ára, vakti athygli á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndar...
Leikkonan Sandra Bullock, 45 ára, var mynduð fyrir utan upptökuver spjallþáttarins Late Sh...
Leikkonan Jessica Biel, 27 ára, stal senunni á frumsýningu kvikmyndarinnar Valentine´s Day...
Á meðfylgjandi myndum má sjá leikkonuna Drew Barrymore, 35 ára, áberandi niðurlúta með sól...
American Idol stjarnan Jordin Sparks, 21 árs, passaði sig á að vefja utan um sig handklæði...
Leikkonan Jennifer Aniston, 40 ára, er stödd í Cabo San Lucas í Mexíkó þar sem hún flatmag...
Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonurnar Jennifer Lopez, 40 ára, og Rihönnu, 21 árs, snæð...
Ef meðfylgjandi myndir sem teknar voru baksviðs á frumsýningu THRILLER í Loftkastalanum er...
Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonuna Beyonce Knowles, 28 ára, missa jafnvægið í miðju s...
Óhætt er að segja að gríðarleg stemmning hafi verið baksviðs í söngvakeppni Sjónvarpsins á...
Robert Pattinson, aðalleikarinn í Twilight-myndunum, kvíðir fyrir því að leika í kynlífsse...
„Ég bjóst ekki við að fá svona mikla athygli út á þetta,“ segir Ása Steinarsdóttir, sem va...
Leikarinn Sam Worthington hefur tekið að sér aðalhlutverkið í sakamálamyndinni Texas Killi...
Elíza Newman – oftast kennd við Kolrössu krókríðandi, en í seinni tíð stundum við kvennakl...
Brad Pitt, 46 ára, og sonur hans, Maddox, 8 ára, voru myndaðir á LAX flugvelli í...