Átta ára dreng með hjól gert að yfirgefa strætó í Hamraborg 7. júlí 2009 19:38
Bræðrum úr Hafnarfirði, fimmtán og átta ára, var gert að yfirgefa strætisvagn í Hamraborg í Kópavogi þegar þeir voru á leið heim til sín í Setbergið í Hafnarfirði seinni partinn í dag. Ástæða þess er sú að drengirnir voru með hjól í strætisvagninum farið var að þrengja að farþegum. Móðir drengjanna er verulega ósátt við að átta ára barn sé ekki öruggt um að komast á leiðarenda með strætisvagni hafi það hjól meðferðis. Bræðurnir hjóluðu heim úr Hamraborg. „Hann þurfti að hjóla úr Hamraborginni í Kópavogi upp í Setberg í Hafnarfirði, átta ára gamall," segir Þorbjörg Bergsdóttir, móðir tveggja drengja sem þurftu að yfirgefa leið S1 á leið sinni heim úr Kringlunni fyrr í dag vegna plássleysis en drengirnir höfðu hjól meðferðis. Þorbjörg hafði samband við Strætó Bs. og fékk þar þau svör að hjól hefðu ekki forgang. Henni finnst að frekar eigi að meta hvert tilvik fyrir sig. „Ég hefði ekki gert neina athugasemd við þetta ef að þetta hefðu verið tveir 15 ára unglingar. En að foreldrar svona ungra barna geti ekki treyst á að börn þeirra komist á leiðarenda ef þau eru með hjól meðferðis finnst mér út í hött," segir hún og bætir við: „Ef að ég væri sjálf að keyra framhjá Hamraborginni og myndi henda strákunum mínum út yrði ég kærð til Barnaverndarnefndar." Þorbjörg segist hafa spurt þann er hún ræddi við hjá Strætó hvort það væri regla hjá þeim að henda út konum með barnavagna en fengið þau svör að svo væri ekki. Þorbjörg vill vara aðra foreldra við því að senda svona ung börn með hjólin sín í strætó því það sé augljóslega ekki víst að þau komist á leiðarenda. Hún segir það ekki skipta máli að eldri bróðir hans hafi verið með honum því það breyti ekki því að átta ára barni hafi verið vísað út úr strætó. „Ég mun ekki senda strákana aftur með strætó."
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Sjá meira