Innlent

Umferðarráð vill meiri löggæslu á vegum úti í sumar

MYND/Daníel

Umferðarráð hvetur stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á komandi sumri þar sem viðbúið er að fleiri ferðist innanlands í ár en oft áður. Þá varar ráðið við niðurskurði á fjármagni til Umferðarstofu. „Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér," segir í ályktun frá Umferðarráði.

Bent er á að á tveimur undanförnum árum hafi átt sér stað jákvæð þróun varðandi fækkun banaslysa í umferðinni, en aldrei hafi þau orðið færri tvö ár í röð á síðustu 40 árum. „Fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa á þessu tímabili er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi. Vonandi tekst að halda áfram á sömu braut á þessu ári með aukinni vitund fólks um mikilvægi ýmissa öryggisþátta í akstri. Engu að síður hefur alvarlega slösuðum fjölgað síðustu árin. Helstu ástæður eru of mikill umferðarhraði, ölvunarakstur og vanræksla á notkun bílbelta."

Til þess að sporna við þessari þróun varar Umferðarráð við niðurskurði fjármagns til Umferðarstofu og segir afleiðinguna af því vera meðal annars skert umferðarfræðsla til barna og umferðaráróður í fjölmiðlum. Þá hvetur Umferðarráð stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á vegum landsins í sumar vegna aukinnar umferðar. „Einnig hvetur Umferðarráð alla þá sem leið eiga um vegi landsins að leggja sitt að mörkum svo takast megi að fækka alvarlegum umferðarslysum," segir einnig.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×