Innlent

Birkir Jón: Lofar ekki góðu ef ríkisstjórnin er klofin í ESB máli

Birkir Jón Jónsson.
Birkir Jón Jónsson. MYND/GVA

Birkir Jón Jónsson. varaformaður Framsóknarflokksins segir það ekki lofa góðu ef ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um Evrópumálin og ætli sér þess í stað að leggja spurninguna um hvort hefja eigi aðildarviðræður í dóm Alþingis eins og Morgunblaðið segist hafa heimildir fyrir. Hann segist hlynntur aðildarviðræðum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

„Mér finnst þetta nú ekki lofa góðu ef ríkisstjórnin ætlar að fara klofin af stað í máli sem þessu," segir Birkir. „Það veit örugglega ekki á gott með framhaldið. En við eigum eftir að sjá hvernig stjórnin kemur með málið inn í þingið og það er allt mjög óljóst í þessu. Ég ætla þessvegna að veita þessari ríkisstjórn svigrúm til athafna. En við hljótum samt að kalla eftir því að hún klári þennan stjórnarsáttmála þannig að það verði hægt að fara að ráðast í einhverjar raunverulegar aðgerðir. Það er mikil óþreyja í okkur framsóknarmönnum að þing komi saman og að menn fari að setjast yfir það verkefni að takast á við bráðavanda í efnahagsmálum þjóðarinnar."

Þegar Birkir er spurður hvort einhugur sé á meðal framsóknarmanna um að hefja aðildarviðræður segir hann: „Stefna flokksins er skýr í þeim málum. En ef þetta fer svona kemur þetta væntanlega sem þingsályktunartillaga inn í þingið frá klofinni ríkisstjórn. Ég ætla mér því að bíða með að sjá hvernig þetta atvikast og hvernig orðalagið verður. Ég er hlynntur því að það verði farið í viðræður við Evrópusambandið, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, líkt og landsfundur okkar hefur samþykkt." sagði Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins.





Eygló Harðardóttir þingkona framsóknar tekur í svipaðan streng og varaformaðurinn. „Ég verð nú að segja að ef þetta er niðustaðan þá er þetta ótrúlega aum ríkisstjórn. Ég verð að segja fyrir mína parta að ég á mjög erfitt með að treysta Samfylkingunni til að semja við Evrópusambandið. Það voru nú fulltrúar þeirra sem sömdu um Icesave og niðurstaðan úr því er ekki eitthvað til þess að hrópa húrra fyrir," segir Eygló og bætir því við að þar hafi menn verið tilbúnir til þess að „gera hvað sem er á móti því að okkur yrði hugsanlega hleypt hratt inn í ESB," segir Eygló.

„Ríkisstjórnarflokkarnir geta ekki einu sinni samið um málið sín á milli, hvernig í ósköpunum eiga þeir þá að fara að því að semja um þvílíkt stórmál fyrir íslensku þjóðina," segir hún að lokum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×