Gagnrýnir laun Evu Joly Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. apríl 2009 14:20 Kristján Þór Júlíusson gagnrýndi laun Joly á þingi í dag. Mynd/ Kristján Kristjánsson.
Kristján Þór Júlíusson segir að með samkomulagi sem ríkisstjórnin gerði við Evu Joly hafi ríkið tekið nýja launastefnu. Hún fái greiddar 325 þúsund krónur á dag. „Þetta eru ákveðin skilaboð til þeirra þrettán þúsund námsmanna sem nú standa frammi fyrir því að þurfa að finna vinnu," sagði Kristján Þór Júlíusson við utandagskrárumræður á Alþingi í dag. Kynntur var samstarfssamningur ríkisstjórnarinnar við Evu Joly um síðustu helgi. Hún fær 1300 þúsund króna á mánuði, fyrir aðstoð sína við sérstakan saksóknara sem rannsakar bankahrunið, en verður við störf á Íslandi fjóra daga í mánuði. Það var Birkir J. Jónsson þingmaður Framsóknarflokksins sem hóf utandagskrárumræðu um uppbyggingu atvinnulífs og stöðu ríkissjóðs. Hann gerði atvinnuleysið að umtalsefni og sagði nauðsynlegt að skapa ný störf. Þá lýsti hann jafnframt áhyggjum sínum af stöðu námsmanna í sumar vegna atvinnuleysisins. Kristján Þór sagði að engar upplýsingar lægju fyrir um það með hvaða hætti eigi að taka á málum að öðru leyti en því að það eigi að blanda á saman niðurskurði og skattahækkunum. Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði að meginatriðið framundan væri að skapa 30 þúsund störf á næstu árum ef koma ætti í veg fyrir að fólk yfirgæfi landið. Þá sagði Lúðvík það ljóst að sjávarútvegur og landbúnaður myndu ekki skapa þessi nýju störf og að þessi störf yrðu ekki sköpuð án lántöku. Þá sagði Lúðvík það mikilvægt að erlendir kröfuhafar bankanna gætu eignast þá banka sem þeir mögulega geta eignast og átti þar einkum við um Glitni og Kaupþing.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira