Sport

Gunnar Nelson mætir meistara á morgun

Það reynir svo sannarlega á hinn tvítuga Gunnar Nelson þegar hann keppir á PAN JIU-JITSU CHAMPIONSHIP 2009 í Kaliforníu á morgun, sunnudag, því Gunnar dróst gegn engum öðrum en Clark Graice í fyrstu umferð. Clark Gracie er heimsþekktur bardagaíþróttamaður og úr innsta hring Gracie fjölskyldunnar sem þróaði brasilískt jiu jitsu (BJJ).

Faðir Clark er Carley Gracie sem er 8. gráðu svartbelti í BJJ og m.a. brasilískur meistari 1969-1972. Afi Clark er enginn annar en Carlos Gracie sem er einn upphafsmanna íþróttarinnar. Sjálfur ólst Clark Gracie upp í BJJ gallanum og er margverðlaunaður og meðal verðlauna undanfarin ár má m.a. nefna gullverðlaun á ameríska meistaramótinu 2005 og 2006 og silfurverðlaun 2007. Jafnframt hlaut hann annað sæti 2007 á heimsmeistaramótinu í No-Gi (án galla).

Það verður að segjast eins og er að fyrirfram eru möguleikar hins tvítuga Íslendings ekki taldir miklir á að komast áfram Clark Gracie en á móti kemur allra augu munu beinast að glímunni og góð frammistaða Gunnars mun svo sannarlega vekja athygli innan heims bardagaíþróttanna en Pan Jiu Jitsu meistaramótið er ásamt heimsmeistaramótinu það stærsta í heiminum í dag.

Clark Gracie rekur tvo bardagaíþróttaskóla í San Diego og faðir hann rekur einnig slíkan skóla í San Francisco.

Annar Íslendingur, Vignir Már Sævarsson, keppti í millivigt í byrjendaflokki (hvítt belti) öldunga 36-40 ára í gær og stóð sig vel, en tapaði í fyrstu umferð og féll úr keppni.

Til gamans má geta að Clark Gracie er náfrændi Renzo Gracie sem er aðalþjálfari Gunnars í New York en Gunnar hefur dvalist þar við æfingar undanfarnar vikur og mánuði.

Sjá nánar um PAN JIU-JITSU CHAMPIONSHIP á vefsetri Alþjóða BJJ sambandsins: www.ibjjf.org.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×