Páfi í vandræðum vegna smokka 19. mars 2009 12:10 Benedikt páfi.
Benedikt páfi er lentur í sannkallaðri orrahríð eftir að hann lýsti því yfir í heimsókn sinni í Afríku að smokkar veittu ekki vernd gegn alnæmi. Það átti svosem enginn von á því að Benedikt páfi viki langt frá stefnu kaþólsku kirkjunnar í getnaðarvörnum í heimsókn sinni til Afríku. En það átti heldur engin von á því að hann segði að notkun smokka gerði alnæmispláguna í Afríku enn verri. Það gerði hann hinsvegar í ávarpi sem hann flutti í Kamerún á þriðjudag. Talsmaður páfagarðs hefur útskýrt ummæli páfa á þann veg að hann hefði verið að benda á að smokkar gætu leitt hug fólks frá því að stunda ábyrgt kynlíf. Gagnrýnendur gefa lítið fyrir þá skýringu. Heilbrigðisráðherra Frakklands sagði þannig að ummæli páfa væru risavaxin vísindaleg ósannindi sem gerðu afrískum konum erfiðara fyrir. Talsmaður franska utanríkisráðuneytisins sagði að það væri ekki hlutverk stjórnmálamanna að gagnrýna stefnu kirkjunnar. Þeir litu hinsvegar svo á að yfirlýsingar á borð við þessar væru ógn við hina opinberu stefnu í heilbrigðismálum og skylduna til þess að vernda mannslíf. Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur blandað sér í slaginn og segir að ekki liggi vísindalegar sannanir fyrir því að smokkar leiði af sér óábyrgt kynlíf. Skoðun stofnunarinnar sé sú að smokkar gagnist sérdeilis vel til þess að hefta útbreiðslu alnæmis. Hann bætti því þó við að kenningar kirkjunnar um skírlífi og eða færri bólfélaga myndu vissulega draga úr smitum ef eftir þeim væri farið.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira